Einbýlishúsið við Erluás 21 í Hafnarfirði er til sölu á 205 milljónir króna. Húsið er 285,5 fermetrar, þar af er innbyggður bílskúr 58 fermetrar. Húsið var byggt árið 2002. Sigríður Ólafsdóttir, arkitekt hjá Grímu arkitektum, hannaði það.
Húsið er U-laga. Í miðju þess er um 50 fermetra garður í skjóli sem snýr í suður. Garðurinn hleypir dagsbirtu inn í húsið. Gengið er út í hann úr stofu, eldhúsi og hjónaherbergi.
Hátt er til lofts í húsinu og innréttingar eru vandaðar. Á gólfum er gegnheilt parket úr suður-amerískum viði, lagt í fiskibeinamynstur. Gólfhiti er í öllu húsinu og harðviður í gluggum og hurðum.
Verðlaunaður garður og útsýni yfir Faxaflóa
Veröndin er um 200 fermetrar og skiptist í þrjá palla. Þar eru meðal annars heitur pottur, útisturta, skjólveggir og gróðurbeð. Garðurinn hefur hlotið verðlaun fyrir hönnun sína. Ekki kemur fram í auglýsingunni hvaða verðlaun það eru.
Í húsinu er turnstofa með gluggum í þrjár áttir. Þaðan sést yfir Hafnarfjörð, höfuðborgarsvæðið og Faxaflóa. Á björtum degi má einnig sjá Keili, Snæfellsjökul, Akrafjall og Esjuna.
Í fasteignaauglýsingunni segir að húsið sé í mjög góðu ástandi, bæði að innan og utan. Við innréttingu þess var lögð áhersla á góð efni og hönnun.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir