Þrír indverskir ríkisborgarar hafa verið ákærðir fyrir að framvísa fölsuðum breskum vegabréfum á Keflavíkurflugvelli. Mál þeirra verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í desember.
Samkvæmt ákærunum gerðist þetta 19. mars 2025 í brottfararsal flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þau voru á leið til Dublin á Írlandi og sýndu starfsmönnum Icelandair vegabréfin en um er að ræða tvo karlmenn og eina konu.
Öll eru þau indverskir ríkisborgarar.
Samkvæmt ákærunum voru vegabréfin fölsuð og báru önnur nöfn en nöfn þeirra ákærðu. Þau áttu að vera bresk og gilda í tíu ár, frá 2022 til 2032.
Yngsti maðurinn er einnig ákærður fyrir brot á lögum um útlendinga. Við rannsóknina fannst grunnfalsað litháískt nafnskírteini hjá honum á dvalarstað í Kópavogi í júní 2025.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krefst þess að þau verði dæmd til refsingar og greiði allan kostnað af málunum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir