Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Verðmunur á bökunarvörum nær 66 prósentum milli verslana

Sykur og sumar súkkulaði­vörur hafa lækkað í verði, en egg og mjólk­ur­vörur hækkað. Engin ein verslun er ódýr­ust á öllum könn­uðum vörum.

Verðmunur
Verð­munur Verð­könnun Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ sýnir að allt að 66 pró­senta munur er á verði sömu bök­un­ar­vöru milli versl­ana.

Mikill verð­munur er á algengum bök­un­ar­vörum milli versl­ana hér á landi, sam­kvæmt nýjum verð­könn­unum Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. Munurinn getur numið allt að 66 pró­sentum á sömu vöru og því getur borgað sig fyrir neyt­endur að bera saman verð áður en inn­kaupin eru gerð.

Verð­könn­unin sýnir einnig að tölu­verður munur getur verið á sam­bæri­legum vörum innan sömu versl­unar, eða á bil­inu 9 til 29 pró­sent. Með því að velja ódýr­ara vöru­merki má því spara umtals­verðar fjár­hæðir án þess að skipta um verslun.

Sykur og súkkulaði lækka í verði

Verð­þróun bök­un­ar­vara hefur verið mis­mun­andi síð­ustu tvö ár. Sykur hefur lækkað í verði annað árið í röð og DanSukker-sykur er nú 25 pró­sentum ódýr­ari en í nóv­em­ber 2024. Euros­hopper-strá­sykur hefur lækkað um 18 pró­sent á sama tíma­bili.

Verð á nokkrum súkkulaði­vörum hefur einnig lækkað milli ára. Nóa súkkulað­iperlur, Konsum suðusúkkulaði og Nóa Síríus rjómasúkkulað­i­dropar hafa lækkað um 11 til 13 pró­sent frá nóv­em­ber í fyrra. Þrátt fyrir lækk­un­ina eru vör­urnar þó enn níu til 21 pró­sent dýr­ari en fyrir tveimur árum.

Lindu suðusúkkulaði hefur hins vegar hækkað um 30 pró­sent frá nóv­em­ber 2024 og Freyju suðusúkkulað­i­dropar um 17 pró­sent á tíma­bil­inu frá 2024 til 2025. Verð á þeim síð­ar­nefndu hefur staðið í stað síð­ast­liðið ár.

Með­al­verð á hveiti hefur lítið breyst, en egg hafa hækkað um 12 til 14 pró­sent frá nóv­em­ber 2024. Rjómi, smjör og mjólk hafa á sama tíma hækkað um 10 til 23 pró­sent.

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ segir að lækkun á ýmsum vörum megi meðal ann­ars rekja til sterkara gengis krón­unnar og lægra heims­mark­aðs­verðs á hrá­vörum. Kakóverð sé nú um helm­ingi lægra en það var í lok árs 2024.

Nóa súkkulaðiperlur 313 krónum dýrari í Krambúðinni

Mesti verð­mun­ur­inn í könn­un­inni var á Nóa súkkulað­iperlum. Þær kosta 476 krónur í Fjarð­ar­kaupum en 789 krónur í Kram­búð­inni. Munurinn er 313 krónur, eða tæp­lega 66 pró­sent.

Kötlu púð­ur­sykur er tæp­lega 60 pró­sentum dýr­ari í Kram­búð­inni en í Prís. Þá er verð á Nesbú ham­ingju­eggjum um 42 pró­sentum hærra í dýr­ari versl­un­inni. Minni munur er á Kornax-hveiti, eða um 11 pró­sentum milli hæsta og lægsta verðs.

Engin ein verslun er með lægsta verðið á öllum vör­unum sem voru skoð­aðar. Prís var þó oft­ast ódýr­ast og bauð lægsta verðið á níu af þeim 16 vörum sem feng­ust upp­lýs­ingar um í fleiri en einni verslun. Bónus var ódýr­ast á fjórum vörum, Krónan á tveimur og Fjarð­ar­kaup á einni.

Ódýrara vörumerki getur sparað hundruð króna

Verð­mun­ur­inn getur einnig verið umtals­verður þegar sam­bæri­leg vöru­merki eru borin saman innan sömu versl­unar.

Í Bónus er Euros­hopper-hveiti til dæmis 26,4 pró­sentum ódýr­ara en Kornax-hveiti, sem jafn­gildir um 96 krónum. Í Krónunni spar­ast um 78 krónur, eða 21,4 pró­sent, með því að velja First Price-hveiti í stað Kornax. Í Nettó er Coop-hveiti 87 krónum ódýr­ara en Kornax-hveiti, eða um 23 pró­sent.

Svipaðan mun má sjá á bök­un­arsúkkulaði. Í Krónunni kostar Cachet-bök­un­arsúkkulaði 2.130 krónur á kílóið en Freyju suðusúkkulaði 2.995 krónur. Með því að velja ódýr­ari vör­una spar­ast 865 krónur á hvert kíló, eða um 29 pró­sent.

Í Prís kostar Coop-bök­un­arsúkkulaði 2.245 krónur á kílóið en Nóa Konsum-suðusúkkulaði 2.740 krónur. Þar er sparn­að­ur­inn um 495 krónur á kílóið, eða 18 pró­sent.

Í Bónus er suðusúkkulaði undir eigin vöru­merki versl­un­ar­innar um 11 pró­sentum ódýr­ara en Freyju suðusúkkulaði miðað við kíló­verð.

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ hvetur neyt­endur til að bera saman verð áður en farið er í inn­kaup. Hægt er að nálg­ast verð­upp­lýs­ingar á Ver­dlags­eft­ir­lit.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Sport

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Innlent

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll