Umboðsmaður Alþingis hefur vísað frá kvörtun einstaklings vegna fyrirætlana ríkisstjórnar Íslands um að innleiða bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) í íslenskan rétt. Niðurstaða umboðsmanns var birt á vefsíðu embættisins í byrjun nóvember.
Kvörtunin barst 3. október síðastliðinn og beindist að áformum ríkisstjórnarinnar um lagabreytingar vegna bókunarinnar.
Í niðurstöðu umboðsmanns kemur fram að ekki verði séð að kvartað sé yfir tiltekinni ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem varði sérstaklega réttindi eða hagsmuni kvartandans.
Þess í stað lúti kvörtunin almennt að meðferð lagafrumvarps sem utanríkisráðherra hefur lagt fram á Alþingi.
Umboðsmaður bendir á að hlutverk embættisins sé að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga en starfssvið þess nái almennt ekki til starfa Alþingis.
Undantekning sé gerð þegar umboðsmaður telur meinbugi á gildandi lögum en slíkar aðstæður hafi ekki verið fyrir hendi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir