Nokkrir einstaklingar voru handteknir vegna líkamsárása, hótana og fíkniefnaaksturs á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögregla handtók einstakling vegna gruns um líkamsárás, hótanir og brot á lögreglusamþykkt og áfengislögum. Annar einstaklingur var einnig handtekinn vegna líkamsárása, hótana og brota á lögreglusamþykkt.
Þá var einstaklingur handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu.
Fjölmörg umferðarlagabrot komu jafnframt til kasta lögreglu. Tveir ökumenn voru handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra er jafnframt grunaður um söludreifingu fíkniefna og peningaþvætti.
Í öðrum tilvikum voru þrír ökumenn handteknir vegna gruns um fíkniefnaakstur. Þeir reyndust allir hafa verið sviptir ökurétti. Þá var enn einn ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Að auki var ökumaður kærður fyrir að aka bifreið þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökurétti.
Lögregla hafði einnig afskipti af ökumanni sem hafði skilið bifreið sína eftir í lausagangi og var hann kærður vegna þess. Annar ökumaður var kærður fyrir aksturslag sem varð til þess að bifreið hans missti veggrip.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir