Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Rabbíni ferðast um Vesturbakkann til að kynna sér ofbeldið

„Hendur okkar eru lit­aðar blóði“

Eftir árás
Eftir árás Slökkvi­liðs­maður slekkur eld í bílum og ólífutrjám í þorp­inu Ayn Yabrud á Vest­ur­bakk­anum eftir árás sem ólög­legir ísra­elskir land­nemar frömdu. Mynd: ZAIN JAAFAR / AFP

Rabbín­inn Benny Lau, sem sjálfur styður land­nema­byggðir Ísraela á Vest­ur­bakk­anum, hefur lagt í óvenju­legt ferða­lag til að kynna sér aðstæður Palest­ínu­manna og ræða við bæði land­töku­fólk og íbúa palest­ínskra þorpa. Markmið hans er að vekja fólk í eigin sam­fé­lagi til umhugs­unar um ofbeldi sem framið er í nafni þess.

Lau, sem er 65 ára og á ættir að rekja til þekkts rabbína­ætt­ar­veldis í Ísrael, seg­ist hafa verið blindur á raun­veru­leik­ann á Vest­ur­bakk­anum. Hann ákvað að ferð­ast eftir þjóð­vegi 60, sem liggur frá norðri til suð­urs um Vest­ur­bakk­ann, eftir að fregnir af ofbeldi land­töku­fólks gegn Palest­ínu­mönnum urðu sífellt tíð­ari.

Í nokkra mán­uði heim­sótti hann 20 staði. Á hverjum stað dvaldi hann hálfan dag í land­nema­byggð eða ólög­legum útstöðvum land­töku­fólks og hinn helm­ing­inn í palest­ínsku þorpi í nágrenn­inu. Hann skráði sam­töl sín og upp­lif­anir í bók­ina In the Path of the Patriarchs: A Personal Journey to a Zionist Reckoning. Ísra­elska dag­blaðið Haaretz fjallar um Lau í grein sem birt­ist í dag.

„Þetta er staður sem ég elska. Ég lærði hér, á djúpar rætur hér og þetta er órjúf­an­legur hluti af sögu minni. En ég get ekki sætt mig við til­hugs­un­ina um að sitja hér á meðan hendur okkar eru lit­aðar blóði,“ segir Lau.

Hann seg­ist ekki vera vinstri­s­inn­aður og styðji áfram það sem Ísraelar kalla land­nema­verk­efnið, en með þeim fyr­ir­vara að sak­lausu palest­ínsku fólki sé ekki gert mein. Hann von­ast til að fá fólk í trú­ar­legum síon­isma til að horfast í augu við það sem ger­ist í næsta nágrenni þess.

Skotið á heimili og ráðist á íbúa

Blaða­maður Haaretz fylgdi Lau nýlega í heim­sókn til Wadi al-Sheikh-hverf­is­ins í palest­ínska bænum Beit Ummar, norð­vestur af Hebron.

Íbúar sögðu að land­töku­fólk frá útstöð­inni Gefen Ami, sem er aðeins um 200 metra frá hverf­inu, hefði ráð­ist á svæðið kvöldið áður. Þrír bílar hefðu verið brenndir, gróð­ur­hús eyði­lagt og skotum hleypt af í átt að íbúð­ar­húsum. Ein kúlan hefði farið í gegnum svefn­her­berg­is­glugga og hættu­lega nærri lít­illi stúlku sem lék sér á gólf­inu.

Land­nema­mið­ill hélt því fram að árásin hefði verið svar við grjót­kasti Palest­ínu­manna, en íbú­arnir neit­uðu því að nokkur slík ögrun hefði átt sér stað.

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Beit Ummar sagði Lau að íbúar hefðu sætt nær dag­legum árásum frá útstöð­inni síð­ustu tvo mán­uði.

„Þú ert gyð­ingur og þeir eru gyð­ingar, en þú ert frið­samur,“ sagði hann við rabbín­ann. „Þú vilt hjálpa okkur, á meðan þeir kaupa byssur til að skjóta á heim­ili okkar.“

Annar íbúi sýndi blaða­mann­inum og Lau skotsár í glugga svefn­her­bergis síns og för eftir kúl­una á veggnum. Þriðji mað­ur­inn sagði land­töku­fólk hafa ráð­ist á sig með grjóti um miðjan októ­ber. Ein stein­vala hefði lent á hné hans og hann þurft að gang­ast undir aðgerð.

Ísra­elski her­inn svar­aði ekki fyr­ir­spurn Haaretz um atvikin.

Rabbíninn kallaður svikari og „versti maður kynslóðarinnar“

Lau vildi einnig hitta hjónin Yair og Ayala Ben-Baruch, sem stofn­uðu útstöð­ina Gefen Ami. Hann hafði sam­band við Yair og sagð­ist vilja heyra hans hlið á mál­inu áður en hann drægi álykt­anir.

Yair við­ur­kenndi í sam­tali við Lau að útstöðin hefði ekki verið reist með lög­legum hætti eða í sam­ráði við her­inn. Hann neit­aði hins vegar að íbúar hennar hefðu staðið að árásinni í Beit Ummar.

Eftir heim­sókn­ina skrif­aði Lau um sam­talið á Facebook. Yair svar­aði með eigin færslu og sak­aði rabbín­ann um að nið­ur­lægja sig opin­ber­lega. Í kjöl­farið varð Lau fyrir miklum árásum á sam­fé­lags­miðlum. Meðal þess sem honum var kallað voru „vók ormur“, „sam­verka­maður óvina okkar“ og „versti maður kyn­slóð­ar­innar“.

Lau seg­ist hafa sætt gagn­rýni fyrir að sverta orð­spor ólög­lega land­nema­sam­fé­lags­ins og skilja ekki ótta land­nem­anna við árásir Palest­ínu­manna.

Hann seg­ist hins vegar ekki ætla að hætta að ræða við land­töku­fólk. Hann gagn­rýnir einnig vinstri­s­inn­aða gyð­inga sem neiti að eiga sam­tal við rót­tæka land­nema.

„Ég trúi á að tala við báða aðila. Það kemur ekki til greina að ég hlusti á Palest­ínu­menn en neiti að tala við gyð­inga,“ segir hann.

Lau von­ast til að geta haft áhrif á afstöðu fólks innan trú­ar­legs síon­isma, meðal ann­ars til Bezalel Smotrich, leið­toga flokks­ins Trú­ar­legs síon­isma. Honum þætti það árangur ef honum tæk­ist að fá jafn­vel hund­rað manns til að end­ur­skoða stuðn­ing sinn við Smotrich.

Hann varar jafn­framt við því að ef lög og regla verði ekki end­ur­reist á Vest­ur­bakk­anum sé hætta á að ofbeld­is­fullir öfga­menn gyð­inga snú­ist að lokum gegn ísra­elska rík­inu sjálfu.

Aðspurður hvort hann teldi Yair Ben-Baruch hafa sagt satt þegar hann neit­aði að íbúar útstöðv­ar­innar hefðu staðið að árásinni í Beit Ummar svar­aði Lau:

„Ég held að hann sé ekki að segja sann­leik­ann, en ég held að hann sé að segja sinn eigin sann­leika. Það er allt annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Heimur

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Beau Jessup hafði lokið meistaranámi í leikritun við Cambridge-háskóla og hugðist starfa sem blaðamaður og rithöfundur að námi loknu við Columbia.
Heimur

Óttaðist að særa Guð með því að veita sjálfri sér unað

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt

Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku

Heimur

Kynlíf enn eitt öfl­ug­asta vopn leyni­þjón­usta