Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra steig feilspor í umræðu á Alþingi í vikunni um hvernig stjórn Landsvirkjunar hrakti burt forstjórann farsæla, Hörð Arnarson. Kristrún taldi málið ekkert óeðlilegt þegar Guðrún Hafsteinsdóttir spurði hana út í það, jafnvel þótt í ljós væri komið að stjórnin fundaði reglulega án Harðar og beiðni hans um fund með Daða Má Kristóferssyni var ekki sinnt þar til hann gafst upp eftir að hafa sagst hafa upplifað erfiðustu starfsaðstæður á sinni starfsævi.
„Auðvitað finnst mér leitt að hann hafi sagt af sér með nokkra mánuði eftir af sinni skipun,“ sagði Kristrún á Alþingi og bætti við: „En mér finnst ekki óeðlilegt að það komi upp ágreiningur af þessu tagi og vonandi getum við leyst málið núna.“
Vandamálið er að Hörður átti ekki nokkra mánuði eftir af sinni skipun sem forstjóri. Hann var ótímabundið skipaður. Misskilningurinn um að Hörður væri útrunninn í forstjórastóli er þó talinn gefa vísbendingar um að atburðarásin kunni að hafa verið meðvituð, að minnsta kosti innan stjórnar Lansvirkjunar. Ef ekki mál telja meðvitundarleysið um málefni ríkisorkufyrirtækisins í ríkisstjórninni allt um vefjandi.
Kristrún baðst síðan „efsökunar“ á mistökum sínum, eins og hún sagði: „Ég biðst afsökunar á því ef það var rangt hjá mér.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir