Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, er að eigin sögn á barmi taugaáfalls. Ástæðan er sleifarlag Fjölmiðlanefndar sem enn hefur ekki gefið út hve háan styrk stöðin fær eða hvenær.
„Ég leita til allra stuðningsmanna Samstöðvarinnar um hjálp ...,“ skrifar hann í einlægri færslu á Facebook og segir að útgáfan sé í greiðsluvanda en ekki rekstrarvanda.
Hann undirritar neyðarkallið sem ritstjóri á barmi taugaáfalls. Gunnar Smári, sem er annálaður harðjaxl, hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir einlægni og mildi í skugga erfiðra veikinda. Hann hefur verið að þýða og birta gullfalleg ljóð, lesendum til mikillar ánægju ...
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir