Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og leiðtogi sjálfstæðismanna, er í miklum vandræðum vegna sligandi skulda bæjarins. Fyrir kosningar hélt hann því ítrekað fram að rekstur sveitarfélagsins væri í miklum blóma.
Varla var búið að telja upp úr kjörkössunum þegar í ljós kom snjóhengjan sem nú ógnar fjárhag bæjarbúa og hefur sett sveitarfélagið fast að gjörgæslustigi. Meirihlutinn kynnti fyrir kosningar mikla hagræðingu í stjórnsýslunni svo sem launalækkun bæjarfulltrúa og fleiri sparnaðaráform.
Hermt er að á sama tíma hafi laun bæjarráðs og sér í lagi formanns þess verið hækkuð. Minnihlutinn í bæjarstjórninni hefur óskað eftir upplýsingum um lögfræðikostnað bæjarins sem þykir ríflegur þar sem Þór geri fátt án þess að ráðfæra sig við lögmann bæjarins fyrst. Sýnt þykir að það stefni í enn meira óefni í fjármálunum á næstunni. Þar með verður enn frekar undirstrikað að sannleikurinn var ekki fylgifiskur sjálfstæðismanna fyrir kosningar ...
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir