Fullorðnir Íslendingar verja meiri tíma í lestur og hlustun á bækur en í fyrra, samkvæmt nýrri lestrarkönnun sem RÚV greinir frá. Að meðaltali verja landsmenn 64 mínútum á dag í bækur, samanborið við 59 mínútur í fyrra.
Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta, segir niðurstöðurnar ánægjulegar og telur mikinn meðbyr vera með lestri um þessar mundir.
Hlutfall þeirra sem lásu enga bók síðasta mánuðinn hefur lækkað úr 37 prósentum í 33 prósent. Þá hefur notkun bókasafna ekki mælst meiri frá árinu 2019. Íslendingar lesa að jafnaði rúmlega tvær bækur á mánuði.
Mikill munur er þó á lestrarvenjum kynja og aldurshópa. Konur verja að meðaltali 80 mínútum á dag í lestur en karlar 49 mínútum.
Fólk yfir 75 ára aldri les mest, eða 94 mínútur daglega. Á sama tíma segist rúmlega helmingur fólks á aldrinum 18 til 24 ára lesa minna en fyrir fimm árum.
Á sama tíma og bókasöfn njóta aukinna vinsælda hafa áform meirihlutans í Reykjavík um hagræðingu í rekstri þeirra vakið nokkra athygli. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði í október í Kastljósi RÚV að tillaga meirihlutans hefði verið óheppilega orðuð og valdið misskilningi en þar var sagt að skorið yrði niður hjá bókasöfnum í borginni. Hún ítrekaði að ekki stæði til að loka bókasöfnum en að áfram yrðu skoðaðir möguleikar á hagræðingu í rekstri þeirra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir