Álft var skotin til bana á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í gær, 16. nóvember, að því er fram kemur í færslu Dýravaktarinnar, samtaka um réttindi og velferð dýra. Samtökin segja sjálfboðaliða sína hafa orðið vitni að því þegar tveir menn komu á merktum fyrirtækjabíl á svæðið og skutu fuglinn.
Atvikið átti sér stað á almennu útivistarsvæði í miðri íbúðabyggð. Að sögn Dýravaktarinnar höfðu samtökin áður fengið ábendingar um að álftin væri föst í ís á lítilli tjörn á svæðinu. Sjálfboðaliðar fóru því á vettvang til að fylgjast með henni.
Í færslunni segir að álftin hafi ekki verið frosin föst og hafi getað hreyft sig. Hún hafi sést éta vel, flogið ítrekað í burtu og haldið til á tjörninni með öðrum álftum.
„Hún virtist ekki vera að einangra sig frá öðrum fuglum og hélt til í hópi annarra álfta,“ segir í færslu samtakanna.
Síðdegis varð sjálfboðaliði Dýravaktarinnar, samkvæmt frásögn samtakanna, vitni að því þegar tveir menn komu á vettvang á merktum fyrirtækjabíl og skutu álftina. Hræinu hafi í kjölfarið verið komið af svæðinu.
Krefjast skýringa á ákvörðuninni
Dýravaktin segist hafa haft samband við lögreglu en verið vísað til Hafnarfjarðarbæjar varðandi frekari upplýsingar. Samtökin hafa óskað eftir formlegu svari frá bænum og vilja meðal annars fá upplýsingar um hvaða gögn lágu til grundvallar ákvörðuninni um að aflífa fuglinn.
„Var hún skoðuð af dýralækni? Hafði verið staðfest að hún væri veik eða særð? Hver tók ákvörðunina?“ spyr Dýravaktin í færslunni.
Samtökin vilja jafnframt fá upplýsingar um hvaða lagaheimild hafi legið að baki því að skotvopn var notað á almennu útivistarsvæði í íbúðabyggð. Þau benda á að börn hafi verið á staðnum þegar atvikið átti sér stað.
Í færslunni er minnt á að álftin sé friðuð samkvæmt íslenskum lögum. Þótt heimilt geti verið að aflífa villt dýr við ákveðnar aðstæður þurfi gildar forsendur að liggja fyrir.
„Við erum ekki að halda því fram að veik eða alvarlega særð dýr eigi að vera látin þjást. Þvert á móti. En aflífun friðaðs fugls verður að byggjast á málefnalegu mati og lögmætum forsendum,“ segir í yfirlýsingu samtakanna.
Dýravaktin telur mikilvægt að hræ álftarinnar verði varðveitt svo hægt sé að rannsaka heilsufar hennar og kanna ástæður aflífunarinnar.
Samtökin segjast ætla að halda áfram að óska eftir svörum frá Hafnarfjarðarbæ og upplýsa um framvindu málsins. Í færslunni birta þau einnig stutt myndskeið af atvikinu og annað myndskeið sem tekið var af álftinni fyrr um daginn.
Mannlíf hefur sent fyrirspurnir á málið á Hafnarfjarðarbæ og bíður svara.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir