Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur telur að sigur Úkraínu í stríðinu við Rússland sé smám saman að verða óhjákvæmilegur. Hann segir rússneska herinn verða fyrir gríðarlegu mannfalli og að fórnir Rússa á vígvellinum séu að verða til einskis.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu Vals þar sem hann fer yfir stöðu stríðsins og lýsir þeirri skoðun sinni að Rússar séu að veikjast verulega.
Valur, sem sjálfur dvaldi í Úkraínu eftir að stríðið hófst, heldur því fram að Rússar missi um 50 þúsund hermenn á mánuði, mannfall sem engin þjóð geti staðið undir til lengdar.
Hann segir jafnframt að laun berist ekki til hermanna og að hluta þeirra sé stolið af herforingjum. Þá hafi skráningarbónusar og bónusar til aðstandenda fallinna hermanna verið lækkaðir verulega.
„Meðallíftími Rússa á víglínunni er um 30 mínútur og ef fjölskyldan fær engan arf er það til lítils,“ skrifar Valur.
Hann segir Úkraínumenn hafa endurheimt meira og minna allt landsvæði sem Rússar hafi lagt undir sig á árinu og telur að fórnir rússneska hersins hafi því verið til einskis.
„Pútín er búinn að tapa stríðinu á víglínunni og getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum,“ skrifar hann.
Telur loftárásir ekki geta knúið Úkraínu til uppgjafar
Valur segir að ekkert dæmi sé um að þjóð hafi gefist upp vegna loftárása einna saman. Hann telur jafnframt ólíklegt að árásaraðili geti sigrað þjóð sem neitar að gefast upp eftir fimm ára stríð.
Hann vísar einnig til þess að stuðningsmenn Donalds Trump séu farnir að snúa baki við málstað Rússa.
„Við sjáum að Trömpistarnir yfirgefa sökkvandi skip,“ skrifar Valur.
Hann veltir því jafnframt upp hvort fall Vladimírs Pútíns gæti orðið skyndilegt og með óvæntum hætti.
„Nú er bara spurning um hvort Pútín lendi í einhverju óhappi og daginn eftir mun stríðinu ljúka,“ segir hann.
Í athugasemd við færsluna bætir Valur við að olíuflutningabílar séu sendir frá vígstöðvunum til að sjá Moskvu fyrir orku. Það geri sóknaraðgerðir Rússa enn erfiðari, að hans mati.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






































Athugasemdir