Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt ungan mann fyrir nettælingu og kynferðislega áreitni gegn stúlku sem var aðeins 12 ára þegar brotin voru framin. Maðurinn var sjálfur 17 ára þegar atvikin áttu sér stað, á tímabilinu ágúst til október árið 2020.
Dómurinn var kveðinn upp 16. nóvember. Samkvæmt ákæru hafði maðurinn ítrekað haft samband við stúlkuna á Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum. Hann hafði einnig mælt sér mót við hana í kynferðislegum tilgangi.
Þegar þau hittust kyssti maðurinn stúlkuna ítrekað með tungunni. Hann var líka ákærður fyrir að hafa klipið hana í rassinn utan á fötunum. Hann var sýknaður af því þar sem ekki þótti nægilega sannað að það hefði gerst.
Maðurinn viðurkenndi að hafa kysst stúlkuna en sagðist ekki hafa vitað hversu ung hún var. Dómurinn taldi þó sannað að hann hefði vitað aldur hennar en ekki látið það stöðva sig.
Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þess að maðurinn var sjálfur undir lögaldri þegar brotin voru framin. Málið hafði líka tafist verulega, án þess að það væri honum að kenna.
Dómurinn taldi brotin alvarleg. Þau höfðu mikil áhrif á líðan stúlkunnar og hún þurfti meðal annars að leita til sálfræðings.
Dómurinn frestaði ákvörðun refsingar í eitt ár, með því skilyrði að maðurinn bryti ekki af sér á þeim tíma. Honum var einnig gert að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur í miskabætur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir