Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Peningar

Lands­liðs­konur í ný störf

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Katrín varar við alvarlegri ógn gervigreindar

„En hvað með almenna borg­ara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“

Höfundarréttur í hættu
Höf­und­ar­réttur í hættu Katrín Jak­obs­dóttir varar við áhrifum gervi­greindar á höf­und­ar­rétt og kallar eftir sam­tali stjórn­valda við lista­menn. Mynd: BHJ

Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­seta­fram­bjóð­andi, varar við því að þróun gervi­greindar geti ógnað höf­und­ar­rétti, aukið sam­þjöppun valda og haft víð­tæk áhrif á íslenskt sam­fé­lag. Hún kallar eftir auknu sam­tali stjórn­valda við lista­menn og aðrar starfs­stéttir um fram­tíð tækn­innar.

Þetta kemur fram í grein Katrínar sem birt­ist á Vísi.

„Yfir stendur nú ógn­ar­mikið og ef til vill ekki mjög yfir­vegað kapp­hlaup um yfir­ráð yfir gervi­greind,“ skrifar Katrín og bendir á að Banda­ríkin og Kína standi fremst í þró­un­inni.

Hún telur að Íslend­ingar eigi að móta eigin nálgun í sam­starfi við Norð­ur­löndin og byggja hana á lýð­ræði, mann­rétt­indum, jafn­rétti og sjálf­bærni.

Katrín hefur sér­stakar áhyggjur af áhrifum tækn­innar á skap­andi greinar.

„Hugmynd okkar um höf­unda­rétt er í hættu, hand­rits­höf­undar, þýð­endur, lista­menn, leik­arar, hönn­uðir og rit­höf­undar and­mæla.“

Hún veltir jafn­framt upp þeirri spurn­ingu hvort almenn­ingi sé yfir­höfuð sama hver standi að baki lista­verkum.

„En hvað með almenna borg­ara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“

Katrín fagnar til­mælum Banda­lags íslenskra lista­manna um notkun gervi­greindar og hvetur stjórn­völd til að bregð­ast við.

„Ég fagna þessu fram­taki íslenskra lista­manna og kalla eftir því að stjórn­völd eigi virkt sam­tal við lista­menn um fram­tíð höf­und­ar­réttar og notkun gervi­greindar í íslensku sam­fé­lagi.“

Hún segir mik­il­vægt að sam­fé­lagið taki með­vit­aðar ákvarð­anir um þró­un­ina enda muni hún hafa áhrif á störf, tekjur og vel­ferð­ar­kerfið.

Vilja stilla saman strengi

Katrín vísar í grein­inni til átaks­ins STILLUM SAMAN STRENGI sem Bandalag íslenskra lista­manna (BÍL) hóf fyrir stuttu. Átakið hvetur fólk til að nota gervi­greind á ábyrgan hátt. Fagfélög BÍL unnu til­mælin með menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neyt­inu. Mark­miðið er að taka til­lit til höf­und­ar­réttar sam­hliða tækni­þróun og koma í veg fyrir að aukin notkun gervi­greindar bitni á lista­mönnum og höf­undum.

Áhyggjur Katrínar af áhrifum gervi­greindar á skap­andi greinar eru ekki eins­dæmi hér á landi. Fjöl­margir íslenskir lista­menn og for­svars­menn rétt­inda­sam­taka hafa á und­an­förnum miss­erum varað við þeirri ógn sem tæknin geti skapað fyrir atvinnu­ör­yggi lista­fólks og höf­und­ar­rétt.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens lýsti því yfir árið 2025 miklum áhyggjum af fram­tíð tón­list­ar­iðn­að­ar­ins og sagði óveður í aðsigi vegna örrar þró­unar gervi­greindar. Hann gagn­rýndi meðal ann­ars að tæknin væri notuð til að búa til tón­list með röddum þekktra söngv­ara.

Söng­konan Una Stef­áns­dóttir hefur einnig lýst áhyggjum af þró­un­inni. Í mars síð­ast­liðnum greindi hún frá því að hafa hafnað vel laun­uðu verk­efni þar sem til stóð að nýta rödd hennar í tengslum við gervi­greind. Hún gagn­rýndi jafn­framt notkun gervi­greind­ar­tón­listar í aug­lýs­ingum og kall­aði eftir skýr­ari reglum um slíka notkun.

„Akkúrat núna er upp­lifunin svo­lítið sú að það sé verið að þurrka út heila starfs­stétt á einu bretti með til­komu þess­ara AI mód­ela,“ sagði Una.

Guðrún Björk Bjarna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri STEFs, hefur sömu­leiðis tekið undir áhyggjur tón­list­ar­fólks. Í umfjöllun Vísis í júlí 2025 sagði hún gervi­greind vera eina stærstu áskorun sem skap­andi greinar stæðu frammi fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Össur segir Viðreisn veikasta hlekk rík­is­stjórn­ar­innar

„Heimatilbúið klúður, en gæti reynst örlagaríkt.“
Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Innlent

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Tilboð upp á 19 milljónir króna var ógilt, en verðmat á eigninni hljóðaði upp á 23 til 31 milljón króna.
Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir