Ein af jólabókunum í ár er bókin Atómvenjur – bók sem hefur selst í bílförmum um allan heim á undanförnum árum. Íslenski jólabókamarkaðurinn einkennist af íslenskum skáldsögum og barnabókum og því lék okkur forvitni á að vita meira um þessa bók, því fórum við á stúfana.
Bókin kemur út hjá Drápu í þýðingu Skúla Sigurðssonar. Ásmundur Helgason hjá Drápu forlagi segir að erindi slíkrar bókar ráðist fyrst og fremst af því hvort lesandinn geti tekið eitthvað úr henni með sér inn í eigið líf.
„Það er auðvelt að ákveða að nú skuli allt verða öðruvísi. Við ætlum að lesa meira, hreyfa okkur reglulega, leggja símann frá okkur og sinna betur því sem skiptir máli. Fyrirheitin eru einlæg. Svo kemur venjulegur þriðjudagur, verkefnin hlaðast upp og gamla rútínan tekur við.
Þarna hefst samtalið sem James Clear á við lesendur í Atómvenjum. Hann beinir sjónum að smáum athöfnum sem við endurtökum og aðstæðunum sem gera þær líklegri. Hvernig verður ætlun að venju? Hvers vegna reynist stundum svo erfitt að gera það sem við viljum sjálf gera?“ er það fyrsta sem Ásmundur segir þegar hann er spurður út í þessa bók. Og hann er ekki hættur.
„Mér finnst góð bók geta gefið manni nýja spurningu. Maður kemur kannski að lestrinum með þá hugsun að maður þurfi að taka sig á. En fer frá honum með aðra: Hvað get ég gert til að auðvelda mér að standa við það sem ég vil? Sú spurning er bæði áhugaverðari og gagnlegri“, segir Ásmundur og heldur áfram: „Skilaboð bókarinnar eru þau að það er ákveðin þreyta fólgin í því að vera alltaf að semja við sjálfan sig. Ætla ég að gera þetta í dag? Hef ég tíma? Er ég í stuði? Get ég frestað því til morguns? Ef eitthvað fær hins vegar fastan stað í deginum þarf maður síður að taka sömu ákvörðunina aftur og aftur. Það getur verið mikill léttir. Mér finnst þessi umræða eiga sérstaklega vel við þegar allir virðast hafa nóg að gera og athyglin er stöðugt kölluð í margar áttir.“

Bók þarf að hafa erindi út fyrir kápuna
Hvað varð til þess að Drápa ákvað að gefa einmitt þessa bók út?
„Við fáum gífurlegt magn af tölvupóstum með bókum sem er verið að reyna að selja okkur að gefa út á Íslandi. Við skoðum þá alla en flestir fara í ruslið. Það var þó eitthvað við þessa bók sem gerði það að verkum að við hjá Drápu ákváðum að skoða málið betur. Og komumst að því að þessi bók sker sig algerlega úr þegar kemur að þessum flokki bóka. Ég vil geta svarað því hvers vegna einhver ætti að verja tíma sínum í lestur á svona bók. Fólk hefur aðgang að óendanlegu magni af ráðum og hvatningu en hér er komin bók sem okkur finnst raunverulega tímanum vel varið í að lesa. Við sáum líka velgengni bókarinnar í öðrum löndum og svo sannfærðumst við endanlega þegar við lásum bókina. Hún er nefnilega mjög skemmtileg aflestrar.
Svo skiptir máli að lesandinn finni að verið sé að tala við hann af virðingu. Það er auðvelt að gefa stór loforð. Mér finnst þessi bók sérstök að því leyti að hún getur hjálpað fólki að sjá viðráðanlegt næsta skref.
Útgefandi þarf líka að hugsa um líf bókarinnar eftir útgáfudaginn. Mun fólk ræða hana? Lána hana? Taka hana aftur úr hillunni? Það er spennandi þegar bók getur orðið hluti af samtali sem heldur áfram.“
En er ekki nóg komið af bókum sem segja fólki hvernig það eigi að lifa?
„Þetta er fullkomlega eðlileg spurning. Við fáum stöðugt skilaboð um að við gætum gert meira og verið betri í öllu. Ég held að margir séu orðnir langþreyttir á því. Við sjáum svo mikið á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum sem gerir okkur óánægð með eigið líf, fáum þá tilfinningu að við séum að missa af einhverju.
Þess vegna skiptir þessi bók máli. Mér finnst hún geta opnað samtal um það sem fólk vill sjálft gefa meira rými í sínu lífi. Fyrir einn er það nám, fyrir annan samvera, fyrir þann þriðja að verja tíma í eitthvað skapandi.
Maður má líka vera sáttur við flest í eigin lífi. Það þarf ekki að nálgast hverja bók með þá hugmynd að allt sé í ólestri. Stundum vill maður einfaldlega skilja eitt atriði betur. Þetta er í raun grundvallaratriði bókarinnar.“
Atómvenjur koma út í þýðingu Skúla Sigurðssonar. Skiptir máli hver þýðir bók sem þessa?
„Þýðandinn er lykilatriði. Hann mótar alla upplifun íslenska lesandans. Það á við um tóninn, taktinn og hversu auðvelt er að fylgja hugsuninni. Í bók þar sem verið er að útskýra hugmyndir og tengja þær við hversdagslegar aðstæður er tungumálið sjálft stór hluti af miðluninni.
Þarna reynir á nákvæmni og lipurð í senn. Hugsunin þarf að skila sér og textinn þarf að halda lesandanum. Rithöfundur hefur næmni fyrir því hvernig setningar virka og hvernig athygli lesandans er haldið vakandi. Mér finnst því sérstakt ánægjuefni að fá Skúla að íslensku útgáfunni. Bókin er skynsamlega upp byggð og Skúli gerir textann mjög þægilegan aflestrar.“
Margir Íslendingar lesa ensku sér til ánægju. Hvað færir íslensk útgáfa þeim?
„Val. Mér finnst það eitt og sér mikilvægt. Við eigum að geta valið íslensku þegar við lesum um hugmyndir sem varða daglegt líf okkar.
Svo er munur á því að skilja texta og því að finna að maður geti rætt hann eðlilega á eigin tungumáli. Þegar við viljum segja maka, vini eða samstarfsfólki frá einhverju sem við lásum hjálpar að hafa íslenskan texta til að hugsa út frá.
Íslenskan þarf að vera til staðar í allri þessari umræðu: í skáldskap, fræðum, viðskiptum og hversdagslegum vangaveltum. Það er hluti af því að halda tungumálinu lifandi.“
Orðið venjur getur hljómað dálítið hversdagslega. Er það efni í heila bók?
„Hversdagurinn er nú býsna stór hluti af lífinu. Við munum gjarnan eftir stórum atburðum, en tíminn okkar fer að mestu í venjulega daga. Mér finnst því ákaflega eðlilegt að velta fyrir sér hvernig þeir dagar verða til.
Við getum til dæmis sagt að lestur skipti okkur máli. En hvar er lesturinn í deginum? Á bókin einhvern stað? Er alltaf kveikt á einhverju öðru þegar við setjumst niður? Þetta eru litlar og mjög áþreifanlegar spurningar. Sama gildir um svo margt annað sem okkur langar að breyta, laga eða bæta við, hvort sem það er að hugsa betur um líkamann, breyta mataræði eða standa okkur betur í vinnu eða í samböndum við vini og fjölskyldu.
Mér finnst líka áhugavert að bókin skuli spyrja hvað við viljum hafa meira af í lífinu áður en við förum að skipuleggja það. Annars getum við orðið afskaplega dugleg við eitthvað sem skiptir okkur kannski litlu máli.“
Kjarnahugmynd bókarinnar er að smáar breytingar geti haft áhrif þegar þær endurtaka sig. Hvers vegna heldurðu að fólk þurfi á þeirri áminningu að halda?
„Vegna þess að við viljum gjarnan finna strax að eitthvað stórt sé að gerast. Stór ákvörðun getur verið spennandi. Lítið skref virðist stundum svo ómerkilegt að við spyrjum okkur hvort það taki því yfirleitt.
En lítið skref getur fengið stað í lífi sem er þegar fullt. Það þarf kannski ekki sérstakan undirbúning eða fullkomna aðstöðu. Það er hægt að byrja þar sem maður er.
Mér finnst ákveðin rausn fólgin í því að leyfa byrjuninni að vera lítil. Maður þarf ekki að sanna allt fyrsta daginn. Það er svo erfitt að gefa sjálfum sér stór fyrirheit, og ná svo ekki að standa við þau.“
Hvað myndirðu segja við lesanda sem hefur oft byrjað og gefist upp?
„Bókin spyr hvort hann sé að dæma sig of hart. Það er auðvelt að horfa á fyrri tilraunir sem sönnun fyrir því að maður geti eitthvað ekki. En þær geta líka gefið upplýsingar. Var tímasetningin óraunhæf? Var verkefnið of stórt? Var það yfirleitt eitthvað sem maður vildi sjálfur?
Mér finnst gagnlegra að skoða hvað gerðist en að setja stimpil á manneskjuna. Við erum oft fljót að segja: Ég er bara svona. Það getur lokað mörgum dyrum.
Og svo má breyta leiðinni. Það er engin sérstök dyggð í því að halda áfram með aðferð sem passar illa við líf manns.
Svo vil ég taka fram að bókin getur verið gagnleg þótt aðeins ein hugsun eða pæling sitji eftir. Eitthvað sem maður sér skýrar eða ein breyting sem maður vill prófa. Lesandinn skuldar bókinni ekkert afrek. Það er mikilvægt að nálgast hana þannig.“
Útgáfan kemur fyrir jólin. Fyrir hverja er Atómvenjur?
„Ég myndi fyrst hugsa um fólk sem hefur áhuga á því hvernig daglegt líf mótast. Fólk sem vill lesa um hegðun, athygli og það sem gerir breytingar viðráðanlegar. Tilefnið getur verið mjög ólíkt frá einum lesanda til annars.
Þetta gæti verið einhver sem er að hefja nýtt nám, fara inn í nýtt verkefni eða einfaldlega velta fyrir sér hvernig hann vill verja tíma sínum. En forvitni ein og sér er líka ágæt ástæða til að lesa bók.
Svo má hugsa sér þessa bók sem góða jólagjöf. Góð bókagjöf segir að maður hafi hugsað um áhuga manneskjunnar. Ég myndi gjarnan gefa hana einhverjum sem hefur sýnt þessu efni áhuga eða talað um að vilja lesa hana.
Og það er alltaf fallegt að láta fylgja nokkur orð um hvers vegna maður valdi bókina. Þá verður gjöfin persónulegri. Kannski er þetta bók sem gefandann langar líka að ræða við viðtakandann.“
Ef þú ættir að senda ein skilaboð til þess sem stendur með bókina í höndunum, hver væru þau?
„Þú þarft ekki að hafa allt á hreinu áður en þú byrjar. Það má lesa af forvitni, finna eitt atriði sem talar til manns og sjá hvert það leiðir.
Við erum svo vön að hugsa um breytingar sem stór tímamót. Mér finnst falleg tilhugsun að eitthvað geti líka færst til á venjulegum degi, með ákvörðun sem virðist lítil en skiptir mann máli. Bókin er fjári skemmtileg aflestrar, með ótal dæmisögur sem gera hana áhugaverðari og svei mér þá ef hún hefur ekki hjálpað mér að nýta tíma minn betur. Ég er til dæmis loksins farinn að gera æfingarnar frá sjúkraþjálfaranum í fimm mínútur annan hvern morgun“, segir Ásmundur að lokum og brosir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir