Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Peningar

Lands­liðs­konur í ný störf

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

„Eru allir gengnir af göflunum að taka þátt í að normalisera AI ógeð?“

Svavar Knútur er æfur yfir nýjasta æði Íslend­inga

Svavar Knútur
Svavar Knútur Tón­list­ar­mað­ur­inn er allt annað en sáttur við gervi­greind­ina Mynd: Instagram-skjáskot

Tón­list­ar­mað­ur­inn Svavar Knútur gagn­rýnir harð­lega nýtt æði sem tröll­ríður nú Facebook, þar sem not­endur deila myndum af sjálfum sér sem búnar eru til með gervi­greind en mynd­irnar eru byggðar á starfi og áhuga­málum fólks. Í tveimur Facebook-færslum lætur hann óánægju sína skýrt í ljós og segir umrædda þróun langt frá því að vera sak­laust gaman.

Í fyrri færsl­unni lýsir Svavar Knútur furðu sinni á því sem hann sér í streymi sínu og segir þró­un­ina hættu­lega. „Hvaða martrað­ar­dæmi er í gangi í story feedinu mínu? Eru allir gengnir af göfl­unum að taka þátt í að normalisera AI ógeð? Nei, þetta er ekk­ert bara sak­laust gaman. Þetta er normaliser­ing á arðráni tækni­geirans,“ skrifar hann.

Í seinni færsl­unni heldur tón­list­ar­mað­ur­inn áfram gagn­rýn­inni, en beinir henni jafn­framt að skap­andi val­kostum utan gervi­greindar en með færsl­unni birtir hann sjálfs­mynd sem hann gerði á tveimur mín­útum.

„Troddu þessu upp í gervi­greind­ina á þér. Þetta tók mig tvær mín­útur. Er mann­legt. Fullt af ófull­komnun. Miklu fokkíng skemmti­legra en þetta sál­ar­lausa ógeð sem fólk að deila,“ skrifar hann og bætir við að það sem fólk geri sjálft hafi að minnsta kosti ein­hverja sál. „Og það fárán­lega er að bara þetta ein­falda asna­lega drasl er alla­vega með ein­hverja lág­marks sál. Fokking reyna að halda í sál­ina fólk!“

Sjálfs­mynd SvavarsÞetta tók Svavar aðeins tvær mín­útur að gera

Að lokum skorar Svavar Knútur á fólk að snúa baki við gervi­greind­ar­myndum og leggja rækt við eigin sköpun. „Áskorun! Gerið skop­mynd af sjálfum ykkur á max 5 mín­útum og deilið! Finnið dópamínið flæða verð­skuldað!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Pólitík

Össur segir Viðreisn veikasta hlekk rík­is­stjórn­ar­innar

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Fólk

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Ragnar sá sex ljós á himni sem virtust færast áfram í þremur pörum. Fleiri sögðust hafa séð þau, en orsök þeirra er óljós.
Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Fólk

Níu ráð til að gera svefn­her­bergið kyn­þokka­fyllra og auka lík­urnar á meira kyn­lífi

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera