Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Viðreisn vera veikasta hlekkinn í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann gagnrýnir samskipti forystu flokksins við almenna þingmenn og telur að innri vandamál Viðreisnar geti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir ríkisstjórnina.
Össur lét þessi orð falla á Facebook í kjölfar umfjöllunar Heimildarinnar um brotthvarf Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn, en Ingvar gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í gær og lýsti því jafnframt yfir að ríkisstjórnin gæti ekki lengur treyst á stuðning hans.
„Hver hefði trúað því að Viðreisn yrði veikasti hlekkurinn í þessu stjórnarsamstarfi?“ skrifar Össur og vísar til þeirrar ólgu sem hefur verið innan þingflokksins.
Hann telur að samskipti forystunnar við þingmenn flokksins séu komin í óviðunandi horf og nefnir sérstaklega Ingvar, Jón Gnarr og Pawel Bartoszek í því sambandi.
„Þar eru brotin öll lögmál um tengsl forystu og almennra þingmanna ef marka má frásögn Ingvars og Jóns Gnarr, raunar einnig Pawels.“
Össur segir stöðuna vera afleiðingu mistaka innan flokksins og varar við því að afleiðingarnar geti orðið alvarlegar.
„Heimatilbúið klúður, en gæti reynst örlagaríkt.“
Segir ábyrgðina alltaf liggja hjá ráðherrum
Í athugasemdum við færsluna urðu jafnframt orðaskipti um ábyrgð ráðherra og embættismanna á ákvörðunum stjórnvalda.
Björn Vernhardsson gagnrýndi það sem hann kallaði ráðuneytisstjórnmennsku og hélt því fram að þingmenn stæðu ítrekað frammi fyrir fullmótuðum ákvörðunum ráðuneyta og ráðherra.
Össur tók þeirri gagnrýni illa og hafnaði því alfarið að embættismenn bæru sjálfstæða pólitíska ábyrgð á frumvörpum ríkisstjórnarinnar.
„Tóm vitleysa. Að sjálfsögðu lesa ráðherrar þau frumvörp sem þeir flytja, og vinna náið með embættismönnum um innihald þeirra. Ábyrgðin er alltaf, án undantekninga, ráðherrans.“
Ingvar gagnrýndi skattahækkanir og landsbyggðarmál
Ummæli Össurar koma í kjölfar þess að Ingvar Þóroddsson sagði skilið við Viðreisn og gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar hefur meðal annars gagnrýnt skattahækkanir ríkisstjórnarinnar, breytingar á ríkisfjármálum og það sem hann telur vanrækslu á hagsmunum landsbyggðarinnar.
Nefndi hann einnig kílómetragjald, samgönguframkvæmdir, innanlandsflug, Loftbrú og kosningaloforð Viðreisnar sem ástæðu þess sem hann yfirgaf Viðreisn.
Jón Gnarr hafði áður sagt sig úr þingflokki Viðreisnar, 15. október, þótt hann lýsti áfram yfir stuðningi við ríkisstjórnina.
Össur telur augljóst að vandinn liggi innan Viðreisnar sjálfrar og gefur með ummælum sínum til kynna að áframhaldandi ágreiningur milli forystunnar og þingmanna geti ógnað stöðugleika stjórnarsamstarfsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir