Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur kynnt frumvarp á Alþingi sem felur í sér hertar refsingar við vændiskaupum. Samkvæmt frumvarpinu verður ekki lengur hægt að ljúka slíkum málum með sektargreiðslu heldur verða þau tekin fyrir dómstólum.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu ráðherrans þar sem hún fjallar um umfang vændis og tengsl þess við mansal á Íslandi.
„Vændi er þess vegna ekki einhver fjarlægur veruleiki. Þetta er að gerast hér á Íslandi,“ skrifar Þorbjörg.
Hún vísar meðal annars til sérstakrar lögregluaðgerðar í fyrra þar sem 460 virkar vændisauglýsingar fundust á einni vefsíðu. Þá hafi 36 hugsanlegir þolendur mansals fundist í alþjóðlegri lögregluaðgerð, en mikill meirihluti þeirra hafi verið seldur í vændi.
Ráðherrann telur núverandi fyrirkomulag ekki endurspegla alvarleika brotanna.
„Þess vegna legg ég nú til að sektir verði afnumdar sem refsing við vændiskaupum. Með því munu slík brot fara fyrir dómstóla.“
Þorbjörg segir markmiðið ekki að fjölga fangelsisdómum heldur að tryggja að málin fái viðeigandi meðferð. Hún býst við að þeim ljúki að jafnaði með skilorðsbundnum dómum.
„Ég er því einfaldlega leggja til að vændiskaup hætti að njóta sérmeðferðar.“
Að sögn ráðherrans skapar eftirspurn eftir vændi grundvöll fyrir mansal og skipulagða brotastarfsemi. Með því að beina sjónum að kaupendum megi draga úr arðsemi starfseminnar.
Hún hafnar því jafnframt að hertar refsingar ýti endilega undir að vændi fari frekar fram í leyni.
„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölustaður vændis,“ segir Þorbjörg að lokum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir