Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

„Ef það má bjóða einhverjum biturð og kvenfyrirlitningu, endilega lesið Moggann í dag“

Björn Þor­láks­son segir mál­flutn­ing fyrr­ver­andi ráð­herra geta skaðað bæði Morg­un­blaðið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Björn Þor­láks­son gagn­rýnir fyrr­ver­andi ráð­herra harð­lega vegna orða hans um Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Kristrúnu Frosta­dóttur í Morg­un­blað­inu. Hann segir ummælin dæmi um „kjaftæði valda­sjúkra frekjupunga“.

Björn Þor­láks­son, þátta­stjórn­andi á Sam­stöð­inni, gagn­rýnir harð­lega ummæli Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra, í spjall­þætt­inum Spursmál. Morg­un­blaðið greindi frá þeim í dag. Að sögn Björns Þor­láks­sonar ein­kenn­ast ummælin af bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu.

Tilefnið er umfjöllun Björns Bjarna­sonar um Evr­ópu­málið, þar sem hann heldur því fram að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra hafi nýtt sér fáfræði Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um sögu máls­ins til að koma þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar.

Björn Bjarna­son telur jafn­framt að Viðreisn standi nú frammi fyrir þeirri stað­reynd að þjóðin hafi hafnað því máli sem flokk­ur­inn var stofn­aður utan um.

Í Facebook-færslu vísar Björn Þor­láks­son til fréttar Morg­un­blaðs­ins um málið og hvetur fólk kald­hæðn­is­lega til að lesa blaðið.

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag. SES og Bíbí í miklu stuði - eða þannig. Aumingja litlu stub­b­arnir,“ skrifar hann og á þá við Stefán Einar Stef­áns­son, sið­fræð­ing og þátta­stjórn­anda Spurs­mála og Björn Bjarna­son.

Hann lætur ekki þar við sitja og segir skrifin dæmi um það sem hann kallar „kjaftæði valda­sjúkra frekjupunga“.

Björn Þor­láks­son spáir því að slíkur mál­flutn­ingur muni hafa nei­kvæð áhrif á stöðu Morg­un­blaðs­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Það er akkúrat svona kjaftæði valda­sjúkra frekjupunga sem mun valda því að óbreyttu að allir munu hætta að lesa Moggann og eng­inn mun kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn,“ skrifar hann.

Þrátt fyrir harða gagn­rýni tekur Björn Þor­láks­son fram að hann hafi ekki allt á hornum sér gagn­vart blað­inu. Hann segir marga úrvals kollega starfa á Morg­un­blað­inu, sem honum finn­ist lík­lega líða illa yfir stöð­unni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Pólitík

Pólitík

Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

„Gætum við vinsamlegast fengið betri þingmenn takk?“
  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

  • Pólitík

    Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“