Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók par sem var í hávaðarifrildi í Laugardalnum í Reykjavík. Parið var með barn meðferðis og var að sögn lögreglu í mjög annarlegu ástandi vegna ölvunar. Bæði voru vistuð í fangaklefa og barninu komið í umsjón barnaverndar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar fyrir gærkvöldið og nóttina. Þar kemur einnig fram að einn hafi verið handtekinn vegna líkamsárásar í miðborg Reykjavíkur og vistaður í fangaklefa. Þá var einstaklingur handtekinn vegna hótana í Árbænum. Hann var í annarlegu ástandi vegna áfengisneyslu og var einnig vistaður í fangaklefa.
Bifreið var ekið út af í Hafnarfirði. Ökumaðurinn reyndist óslasaður en var undir áhrifum áfengis og var vistaður í fangaklefa.
Lögregla stöðvaði einnig ökumann í Breiðholti sem reyndist undir áhrifum fíkniefna og lyfja. Þá barst tilkynning um samkvæmishávaða í heimahúsi í sama hverfi. Lögregla bað húseigandann að lækka í tónlistinni og varð hann við beiðninni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir