Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Fílar í Srí Lanka
Fílar í Srí Lanka Einn slíkur stopp­aði mein­tan glæpa­mann Mynd: Charles J. Sharp / Wikimedia Commons (CC BY-SA 4.0)

Lögreglan á Srí Lanka handtók á föstudag 49 ára karlmann sem grunaður er um að hafa stungið konu til bana á heimili hennar. Maðurinn reyndi að komast undan á bifhjóli en flóttanum lauk skammt frá heimili konunnar þegar hann ók á villtan fíl sem gekk út á veginn.

Lögreglu­maður sagði í samtali við frönsku frétta­stofuna AFP að árásin hefði átt sér stað í Anuradhapura í norður­hluta landsins. Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn. Að sögn vitna virtist dýrið ómeitt eftir áreksturinn og sneri aftur inn í skóginn.

Maðurinn hlaut áverka og var undir vopnaðri gæslu á sjúkra­húsi þar sem hann fékk aðhlynningu. Lögreglan gaf ekki upp hvers eðlis áverkarnir voru en sagðist hafa fundið vopnið sem talið er að hafi verið notað við árásina.

Algengt er að leiðir fólks og fíla liggi saman á Srí Lanka þar sem byggð og ræktar­land hafa víða breiðst út á búsvæði dýranna. Opinberar tölur sýna að undan­farin fimm ár hafa að meðaltali um 400 fílar og 150 manns látið lífið árlega við slíkar aðstæður.

Talið er að um sjö þúsund villtir fílar lifi á eyjunni. Þeir njóta laga­verndar og teljast þjóðar­gersemi. Íbúar afskekktra þorpa ráðast þó stundum á fíla sem valda skemmdum á uppskeru þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

„Megi Allah veita öllum þeim sem eiga um sárt að binda styrk“
Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“