Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, sagði á Alþingi í dag að hann þekkti af eigin reynslu þann ótta sem lögreglumenn bera í brjósti um öryggi fjölskyldna sinna. Hann hvatti til þess að vandað yrði til rannsókna á brotum sem beinast að lögreglumönnum vegna starfa þeirra.
Tilefni ræðunnar var umfjöllun Kveiks á RÚV í gærkvöldi um ofbeldi gegn lögreglumönnum og rannsókn slíkra mála hjá embætti héraðssaksóknara. Grímur, sem starfaði í tæpa fjóra áratugi hjá lögreglunni, sagði eitt málanna sem fjallað var um í þættinum tengjast sér beint.
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst og lögreglumenn óttast öðru fremur um öryggi fjölskyldna sinna. Af því hef ég persónulega reynslu. Frú forseti. Það er ólíðandi.“
Grímur sagði töluverða gagnrýni hafa beinst að embætti héraðssaksóknara í þættinum. Hann kvaðst ekki vilja bæta við þá gagnrýni og benti á að sönnunarkröfur í sakamálum væru miklar. Ákæranda bæri að meta hvort meiri líkur en minni væru á sakfellingu áður en ákæra væri gefin út.
Grímur rifjaði upp að árið 2007 hefði Alþingi hækkað hámarksrefsingu úr sex ára fangelsi í átta ár fyrir tiltekin brot gegn lögreglumönnum og öðrum opinberum starfsmönnum sem mega beita líkamlegu valdi við störf sín. Að sögn Gríms var breytingin gerð til að efla refsivernd þeirra enda hefðu refsingar að jafnaði verið nærri neðri mörkum refsirammans.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir