Lillý Valgerður Pétursdóttir, fyrrverandi fréttamaður hjá Sýn, hefur stofnað fyrirtækið Krækilyng. Samkvæmt nýskráningu í hlutafélagaskrá er félaginu meðal annars ætlað að sinna ráðgjöf, almannatengslum, ritstörfum og útgáfu.
Lillý starfaði á fréttastofu Sýnar í rúm 20 ár. Henni var sagt upp í lok ágúst þegar Sýn tilkynnti að fyrirtækið myndi hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta. Nokkrum starfsmönnum fréttastofunnar var sagt upp í tengslum við ákvörðunina.
Lillý er eini stofnandi Krækilyngs og fer með framkvæmdastjórn félagsins. Hún situr jafnframt í stjórn þess og hefur prókúruumboð. Pétur Ólafsson er varamaður í stjórn.
Tilgangur félagsins nær einnig til stefnumótunar, upplýsingamiðlunar, fræðslu og verkefnastjórnunar. Samkvæmt samþykktunum er félaginu jafnframt ætlað að annast umsýslu og leyfisveitingar vegna höfundarréttar og annarra hugverkaréttinda.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir