Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar ökumanns og vitna eftir að ekið var á stúlku á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð á Akureyri. Slysið varð um klukkan 14 fimmtudaginn 5. nóvember.
Bifreiðin er sögð hafa verið hvít. Lögreglan biður ökumann hennar að gefa sig fram og óskar eftir því að allir sem urðu vitni að slysinu eða búa yfir upplýsingum um málið hafi samband.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir