Börn Lúðvíks Péturssonar hafa kært til ríkissaksóknara ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður sakamál vegna andláts hans. Lúðvík lést þegar hann féll ofan í sprungu við vinnu sína í Grindavík 10. janúar 2024.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fjölskyldu Lúðvíks. Elías Pétursson, bróðir hans og fyrirsvarsmaður aðstandenda, stendur einnig að kærunni. Ákvörðun héraðssaksóknara um að fella málið niður var tekin 9. nóvember síðastliðinn. Fimm einstaklingar höfðu réttarstöðu sakbornings við rannsókn málsins.
Lúðvík var við jarðvegsþjöppun á lóð Vesturhóps 29 þegar hann féll í sprunguna. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði málið. Úlfar Lúðvíksson, þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, sagði rannsóknina hafa beinst að ákvæði almennra hegningarlaga um manndráp af gáleysi og að lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Krefjast þess að ákæra verði gefin út
Aðstandendur krefjast þess aðallega að ríkissaksóknari felli ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi og að ákæra verði gefin út á hendur öllum eða einhverjum þeirra sem höfðu réttarstöðu sakbornings. Krafan lýtur að manndrápi af gáleysi og brotum á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Jafnframt krefjast aðstandendur þess að saksókn verði höfðuð á hendur þremur lögaðilum. Það eru verktakafyrirtækið sem Lúðvík starfaði hjá, verkfræðistofan sem hafði umsjón með verkinu og Náttúruhamfaratrygging Íslands. Til vara krefjast þeir þess að rannsókn málsins verði haldið áfram.
„Við höfum í nær þrjú ár beðið eftir svörum um hvers vegna Lúðvík var sendur til vinnu ofan á opna sprungu, án áhættumats og eftir að búnaðurinn sem verkið byggði á hafði bilað. Niðurstaða Héraðssaksóknara varð sú að ábyrgðin var lögð á þann eina sem ekki getur svarað fyrir sig. Við getum ekki sætt okkur við það, og við teljum að almenningur eigi rétt á að vita hvernig þetta mál hefur verið meðhöndlað,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, um málið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir