Mor Plai hefur áður spáð fyrir um jarðskjálftann í Mjanmar árið 2025 og banvænan „lungnabólgufaraldur“ árið 2026. Nú hefur hin þekkta taílenska miðils- og spákona varað við því að alvarlegar truflanir geti orðið á tækni- og fjarskiptakerfum víða um heim undir lok ársins 2026. Hún gefur jafnframt í skyn að rafmagnsleysi gæti náð um allan heim og hvetur fólk til að eiga reiðufé til taks.
Viðvaranir um rafmagnsleysi um allan heim hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum undanfarna mánuði. Nokkrar stórfelldar tæknibilanir hafa aukið á áhyggjurnar.
Mor Plai hefur vakið athygli fyrir spár sínar um stórviðburði í heiminum. Hún spáði meðal annars jarðskjálfta af stærðinni 7,9 í Mjanmar árið 2025 og banvænum sjúkdómi sem hún kallaði „lungnabólgufaraldur“ árið 2026. Spár hennar vöktu athygli á ný eftir að fregnir bárust af grunsamlegu atviki í Rússlandi sem tengt var mögulegum plágufaraldri.
Í ágúst kom spákonan fram í YouTube-þætti þar sem hún ræddi það sem hún telur að kunni að gerast á síðustu mánuðum ársins 2026. Hún sagði heiminn gætu beðið alvarleg vandamál í samskiptum og tækni, þar á meðal víðtækar nettruflanir og bilanir í fjarskiptakerfum.
Vísar til hættu á bankatruflunum
Fyrr í þessum mánuði varð umfangsmikil bilun í kerfum Microsoft sem varð til þess að milljónir notenda gátu ekki nálgast tölvupóst, Teams-samskiptaforritið eða gervigreindaraðstoðina. Bilunin hafði einnig áhrif á starfsfólk heilbrigðisþjónustu Englands.
Ráðherra netöryggismála í Bretlandi sagði þó að bilunin hefði ekki haft áhrif á neyðarsímtöl í númerið 999, bráðaþjónustu NHS 111 eða samgöngur.
Microsoft baðst afsökunar á biluninni og sagði hana hafa stafað af tæknilegu vandamáli sem tengdist hvorki netárás né gervigreind eða sjálfvirkum kerfum. Vandamálið hefði komið upp í kjölfar fyrri uppfærslu á afkastagetu netkerfisins.
Mor Plai sagði hins vegar að vandamálin gætu verið kerfislæg og ekki bundin við eitt fyrirtæki.
„Sumir farsímar, samskiptatæki og eldri hugbúnaður gætu orðið mjög hægvirkir eða hætt að virka. Það gæti hugsanlega neytt notendur til að uppfæra búnað sinn,“ sagði hún.
Spákonan líkti mögulegu ástandi við óttann sem ríkti fyrir aldamótin 2000 vegna svokallaðrar Y2K-tölvuvillu. Hún varaði einnig við því að bankakerfi gætu orðið fyrir áhrifum og hvatti fólk til að hafa reiðufé við höndina ef rafrænar greiðslur myndu bregðast.
Tæknibilanir í Bandaríkjunum
Fjöldi tæknibilana hefur einnig haft áhrif á stórbanka, fyrirtæki og opinberar stofnanir í Bandaríkjunum. Þann 13. nóvember varð bilun sem varð til þess að bandaríska flugmálastjórnin, FAA, fyrirskipaði tímabundið flugbann um allt land.
Delta Air Lines sendi frá sér tilkynningu síðar um helgina og bað farþega afsökunar á töfum. Flugfélagið staðfesti að sjálfvirkt kerfi þess, sem reiknar út þyngd og jafnvægi flugvéla fyrir brottför, væri aftur komið í lag.
Síðastliðinn fimmtudag, 19. nóvember, dreifðist einnig fölsk tilkynning á samfélagsmiðlum þar sem því var haldið fram að breska raforkufyrirtækið National Grid hefði varað við stórfelldu rafmagnsleysi.
Myndrænt efni með fölsku viðvöruninni var deilt þúsundum sinnum á Facebook og Instagram. Þar sagði að stórt rafmagnsleysi myndi hafa áhrif á stór svæði í Bretlandi frá klukkan 16 þann 19. nóvember 2026 vegna alvarlegrar bilunar í landsnetinu.
Í tilkynningunni var því jafnframt haldið fram að rafmagn gæti farið af heimilum, fyrirtækjum og opinberri þjónustu í langan tíma. Fólki var ráðlagt að hafa vasaljós við höndina, hlaða nauðsynleg tæki og halda ísskáps- og frystihurðum lokuðum.
Talsmaður National Grid vísaði fullyrðingunum á bug.
„Okkur er kunnugt um falska færslu á samfélagsmiðlum þar sem því er haldið fram að rafmagnsleysi verði í kerfi National Grid fimmtudaginn 19. nóvember 2026.
Ekkert rafmagnsleysi er fyrirsjáanlegt. Við biðjum fólk um að hunsa færsluna og tilkynna rangar upplýsingar til samfélagsmiðlanna. Fylgist með opinberum miðlum okkar til að fá réttar upplýsingar,“ sagði talsmaðurinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir