Sundfötin gætu komið sér vel í ferðinni á bókasafnið á morgun. Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal og Dalslaug bjóða þá til kyrrðarkvölds þar sem gestir geta flotið í innilauginni og hlustað á ljúfa tóna úr nepölskum söngskálum í sal safnsins.
Í Dalslaug gefst gestum færi á að fljóta saman og láta líða úr sér í vatninu. Þau sem vilja hafa það rólegt á þurru landi geta komið sér fyrir í salnum á bókasafninu þar sem boðið verður upp á leidda slökun. Að henni lokinni tekur náttúruþerapistinn Jacek Szeloch við og leikur á söngskálarnar í hljóðbaði fyrir hópinn.
Kyrrðarkvöldið hefst klukkan 18 á morgun, þriðjudaginn 24. nóvember, og stendur til klukkan 21.40.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir