Leikarinn, leikskáldið og rithöfundurinn Karl Ágúst Úlfsson á heldur betur ánægjulegan dag í dag, 22. nóvember, en tvö leikverk hans verða sýnd samtímis á tveimur stöðum á landinu.
Verkin eru Harrý og Heimir – morð skulu standa, sem sýnt er í Þjóðleikhúskjallaranum, og Vinir Egils Skalla, sem sett er á svið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Karl Ágúst greinir frá þessu í færslu á Facebook og rifjar þar jafnframt upp að fyrir réttum fjórum árum hafi hann óttast að ferli hans væri að öllum líkindum lokið, eftir að heilinn í honum hafi hótað að „segja endanlega upp störfum“ en þá greindist hann með æxli í heila.
Honum tókst þó, eins og hann orðar það sjálfur, „með hlýju, vinsemd, lævísi og þrjósku“ að fá heilann ofan af þeirri ákvörðun.
Hann segir það líklega ekki hafa gerst í tæp þrjátíu ár að hann hafi átt tvö verk á sviði sama dag. Þá hafi leikritin Í hvítu myrkri verið sýnt í Þjóðleikhúsinu og Fagra veröld í Borgarleikhúsinu.
„Já, líf mitt hefur snúist í marga og lygilega hringi og fyrir það er ég innilega þakklátur. Það er nú heila málið,“ skrifar Karl Ágúst.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir