Alls voru níu ökumenn stöðvaðir af lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Þá ók einn ökumaður á 126 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun. Alls voru 72 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu og tveir gista fangageymslu.
Flestum ökumönnunum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna var sleppt að lokinni sýnatöku. Lögregla var einnig kölluð á krá vegna óláta manns sem ekki var hægt að ræða við sökum ástands hans. Hann var vistaður í fangaklefa.
Þá mældist ökumaður aka á 126 km/klst þar sem hámarkið var 80 km/klst. Blés hann í áfengismæli en mældist undir handtökumörkum. Honum var þó gert að hætta akstri.
Í Kópavogi var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Hann var jafnframt án ökuréttinda og kærður fyrir nokkur minniháttar umferðarlagabrot.
Lögregla hafði einnig afskipti af þjófnaði í verslun í miðborginni. Málið var leyst með vettvangsskýrslutöku. Þá voru nokkrir ökumenn kærðir vegna minniháttar umferðarlagabrota.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir