Mjög þekktir einstaklingar úr skemmtanabransanum starfa enn þrátt fyrir ítrekaðar ásakanir um kynferðisbrot, að því er blaðamaðurinn Julia Raeside heldur fram. Hún segir manninn vera „jafn farsælan og frægan og Russell Brand“, sem nýverið var dæmdur í tíu ára og sex mánaða fangelsi fyrir nauðgun og þrjú kynferðisbrot.
Í viðtali í nýjum YouTube-þætti Mirror, Sense Check, ræddi þáttastjórnandinn Nicola Thorp við Raeside, sem hefur fjallað um grínbransann í rúma tvo áratugi.
Aðspurð hvort hún vissi af mönnum sem störfuðu enn þrátt fyrir ásakanir um nauðganir eða kynferðisbrot svaraði Raeside játandi.
„Já, mjög, mjög frægir og farsælir menn, og þeir starfa enn. Ég geri ráð fyrir að engar afleiðingar bíði þeirra,“ sagði hún.
Raeside segir fólk innan grínbransans hafa haldið leynilega lista yfir karlmenn sem væru þekktir fyrir rándýrshegðun. Listarnir hefðu verið geymdir í WhatsApp-hópum til að vernda konur í bransanum og Mirror hefur fengið að sjá þá.
Raeside segir að kvenkyns grínista hafi verið boðið annað verkefni gegn kynferðislegu athæfi. Önnur hafi neitað að koma fram með manni sem hún taldi kynferðislegt rándýr. Þegar hún sagði umboðsmanni sínum frá því hafi hann svarað: „Þá er best að þú aflýsir.“
Raeside segir einnig frá ungum grínistum sem hafi fengið boð um aðstoð og leiðsögn frá þekktum eldri grínista. Hún hafi varað eina þeirra við orðspori mannsins og því sem hún hefði heyrt í trúnaði.
„Ástæður hans voru ekki þær sem þær virtust vera,“ sagði hún og bætti við að slíkir menn gætu nýtt sér netið til að komast í samband við ungt fólk sem liti upp til þeirra.
Að mati Raeside þarf MeToo-hreyfingin að verða háværari. „Þetta þarf að vera hreyfing, ekki bara augnablik,“ sagði hún og kallaði eftir því að stórstjörnur í skemmtanaiðnaðinum yrðu látnar svara fyrir gjörðir sínar líkt og aðrir.
Nicola Thorp tók undir að vald og peningar hefðu áhrif á hvernig tekið væri á kvörtunum. „Það er auðveldara fyrir framleiðanda að losa sig við konu sem hefur lagt fram kvörtun og er neðar í valdastiganum en að láta aðalstjörnu þáttanna fara. Þetta snýst um peninga,“ sagði hún.
Thorp lýsti jafnframt eigin reynslu af grínista sem hún segir hafa nálgast sig með tilboði um samstarf. Hann hefði viljað koma heim til hennar til að kanna hvort það væru „neistar“ á milli þeirra, en síðar farið að velja föt sem hún ætti að máta og sent henni óviðeigandi myndir með yfirbragði sem tengdust drottnunar- og undirgefnisleikjum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir