Indverska hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma sló eigið heimsmet í limbóskautun þegar hún fór 50 metra á 6,86 sekúndum. Á leiðinni skautaði hún undir röð þversláa sem lækkuðu eftir því sem leið á brautina.
Sharma setti metið 8. október í bænum Umred í indverska ríkinu Maharashtra en Sharma á fleiri heimsmet í greininni.
Í limbóskautun þurfa keppendur að komast undir lágar þverslár án þess að snerta þær. Hendur og búkur mega heldur ekki snerta jörðina. Til að komast undir slárnar fara keppendur gjarnan í „gleiðspígat“ á ferð og lækka efri hluta líkamans þar til hann er rétt yfir jörðu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir