Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslenskuverðlaun þremur árum seinna

Sig­ur­steinn Másson segir fjöl­skyldu stúlkunnar hafa lagt hart að sér við íslensku­nám og að hún sé nú orðin hluti af hans eigin fjöl­skyldu.

Stoltur af Shukriu
Stoltur af Shukriu Sig­ur­steinn Másson segir átta ára Shukriu Jorat og fjöl­skyldu hennar hafa lagt hart að sér við íslensku­nám eftir kom­una til Íslands. Mynd: Instagram-skjáskot

Shukria Jorat, átta ára stúlka sem kom til Íslands frá Afganistan fyrir þremur árum, hlaut í fyrra­dag íslensku­verð­laun unga fólks­ins í bók­mennta­borg­inni Reykja­vík fyrir fram­úr­skar­andi árangur á stuttum tíma.

Sig­ur­steinn Másson, kvik­mynda­gerð­ar­maður, segir frá verð­laun­unum í Facebook-færslu þar sem hann lýsir stolti sínu yfir Shukriu og fjöl­skyldu hennar. Shukria kom til Íslands fyrir þremur árum ásamt móður sinni, ungum móð­ur­systrum, tíu ára móð­ur­bróður og ömmu, frá Afganistan.

Sig­ur­steinn segir fjöl­skyld­una hafa verið til mik­illar fyr­ir­myndar frá því hún kom til lands­ins og lagt hart að sér við að læra íslensku, stunda nám og vinna af miklum metn­aði og sam­visku­semi.

Í umsögn um verð­launin segir að Shukria búi yfir ein­stöku vaxt­ar­hug­ar­fari og þraut­seigju og sýni frum­kvæði. Hún hafi sýnt afburða fram­farir í námi og sé sam­nem­endum sínum fyr­ir­mynd.

„Þetta er hverju orði sann­ara,“ skrifar Sig­ur­steinn.

Flúði Talibana fimm ára

Shukria var aðeins fimm ára þegar henni og nán­ustu fjöl­skyldu hennar tókst með naum­indum að kom­ast undan Tali­bönum í Kabúl.

Sig­ur­steinn segir að þar hafi hún átt enga mögu­leika á fram­tíð og að til­veru­réttur hennar, móður hennar, móð­ur­systra og ömmu hafi í raun verið afnum­inn.

„Hún hefði engra mann­rétt­inda fengið að njóta sem kona hvað þá sjálf­stæðis,“ skrifar hann.

Þremur árum eftir kom­una til Íslands hefur Shukria náð miklum árangri, ekki aðeins í íslensku og öðrum náms­greinum heldur einnig í íþróttum og tón­list.

Sig­ur­steinn segir hana vera knatt­spyrnu­snill­ing og að móðir hennar sé að kenna henni á píanó. Shukria sýni þar snilld­ar­takta þrátt fyrir að hafa aðeins stundað tón­list­ar­nám í nokkra mán­uði.

Fjölskyldan hluti af þeirra eigin fjölskyldu

Sig­ur­steinn segir sig og fjöl­skyldu sína vera afar stolt af Shukriu. Hann lýsir því jafn­framt hvernig afganska fjöl­skyldan hafi orðið hluti af þeirra eigin fjöl­skyldu.

„Ég er rif­andi stoltur afi og mamma er rif­andi stolt langamma,“ skrifar hann og bætir við: „Þau eru fjöl­skylda okkar engu síður en þau sem tengj­ast okkur blóð­böndum.“

Hann segir þau ætla að fara saman út í skóg á aðvent­unni til að velja jóla­tré og að Shukria og frænkur hennar muni skreyta það. Jólunum verði síðan eytt saman.

Í lok færsl­unnar tengir Sig­ur­steinn sögu fjöl­skyld­unnar við jóla­sög­una og segir að hann muni segja þeim frá flótta­fólk­inu Jósef og þung­aðri Maríu sem fengu loks lang­þráð skjól.

„Síðan verðum við jól­unum saman og ég segi þeim sög­una af flótta­fólk­inu Jósef og þung­aðri Maríu sem fengu loks lang­þráð skjól,“ skrifar Sig­ur­steinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Grímur telur vel rök­stutt að fella brott­vís­un­ina úr gildi

„Það er sannarlega svo að manni hrýs hugur við því að útlendingar sem drýgt hafa kynferðisbrot gegn barni fái að vera áfram hér á landi.“
Sport

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Fólk

Fólk

Níu ráð til að gera svefn­her­bergið kyn­þokka­fyllra og auka lík­urnar á meira kyn­lífi

Það þarf ekki að ráðast í dýrar breytingar – byrjaðu á því sem þú átt nú þegar.
Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn