Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

„Ég valdi ekki bílslysið, krabbameinið eða fötlunina“

Eftir 180 daga á sjúkra­húsi segir Ingólfur Marteinn Jones greiðslur sínar falla niður. Hann hafði vænst um 400 þús­und króna í des­em­ber.

Fjárhagslegt áfall
Fjár­hags­legt áfall Ingólfur Marteinn Jones hafði vænst um 400 þús­und króna í des­em­ber. Hann kallar eftir end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi greiðslna vegna langrar sjúkra­hús­dvalar. Mynd: Aðsend

Ingólfur Marteinn Jones segir fjár­hags­legt áfall blasa við sér eftir að hann komst að því að greiðslur frá Trygg­inga­stofnun falli niður vegna þess að hann hafi dvalið sam­tals 180 daga á sjúkra­húsi á ári. Í opnu bréfi til Trygg­inga­stofn­unar, félags­mála­ráð­herra og Alþingis lýsir hann langri og erf­iðri bar­áttu eftir alvar­legt bílslys og spyr hvort fólk sem veik­ist alvar­lega eigi á hættu að missa fjár­hags­legt öryggi vegna langvar­andi veik­inda.

Ingólfur segir að þegar hann skoð­aði tekju­á­ætlun sína hjá Trygg­inga­stofnun hafi komið í ljós að greiðslur hans myndu falla niður vegna sjúkra­hús­dval­ar­innar. Hann hafði átt von á um 400 þús­und krónum í des­em­ber, en nú blasi allt önnur staða við.

„Ég skrifa þessi orð með þungum hug og mik­illi van­trú,“ segir hann í færsl­unni.

Þann 8. júní 2024 varð Ingólfur fyrir alvar­legu bílslysi þegar hann fór útaf veg­inum og hrygg­brotn­aði á fjórum stöðum. Hann segir að fyr­ir­liggj­andi þreng­ingar í mænu­göngum og bein­brot hafi aukið á afleið­ingar slyss­ins.

Hann var fluttur með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar á Land­spít­al­ann í Fossvogi, þar sem hann var svæfður og fór í aðgerð tveimur dögum síðar. Hann var settur í önd­un­ar­vél og bakið spengt saman með málm­bún­aði.

Sex aðgerðir og alvarlegar sýkingar

Ingólfur segir að í 18 mán­uði hafi hann kvartað yfir því að eitt­hvað væri ekki eins og það ætti að vera. Þegar loks náð­ist sam­band við skurð­lækn­inn kom í ljós að skrúfur í speng­ing­unni hefðu brotnað og þurfti því að fram­kvæma aðra stóra aðgerð.

„Það kall­aði á aðra stóra aðgerð þar sem fjar­lægja þurfti bún­að­inn og spengja bakið upp á nýtt, lengra upp og lengra niður – í raun allt bakið,“ skrifar hann.

Í kjöl­farið fékk hann sýk­ingu í málm­bún­að­inn og þurfti að fara í þriðju aðgerð­ina þar sem allt var fjar­lægt. Hann lýsir henni sem kvala­fyllstu aðgerð sem hann hafi getað ímyndað sér.

Síðan tóku við end­ur­teknar lungna­bólgur og langar sjúkra­hús­legur. Eitt sinn vakn­aði hann um miðja nótt og hélt að hann væri að deyja eftir að hægra lungað hafði fallið saman. Hann var fluttur með hraði frá Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja á Land­spít­al­ann í Fossvogi, þar sem hann end­aði aftur í önd­un­ar­vél.

Eftir það fór hann í fjórðu aðgerð­ina til að skola sýk­ingu úr hryggnum. Sýkingin kom síðar aftur og var orðin svo alvar­leg að fimmta aðgerðin var nauð­syn­leg. Þegar hann vakn­aði eftir hana var honum sagt að und­ir­bún­ingur fyrir sjöttu aðgerð­ina ætti að hefj­ast.

„Ég hef aðeins verið að reyna að lifa af“

Ingólfur segir afleið­ingar slyss­ins vera gríð­ar­legar. Hann er með var­an­legt stóma fyrir hægðir og þvag­legg í gegnum kvið­vegg, er lamaður frá mitti og hefur misst stjórn á lík­ams­starf­semi sem flestir taka sem sjálf­sögðum hlut. Hann segir sig vera til­finn­inga­lausan frá brjóstum niður að hnjám.

Þá greind­ist hann árið 2016 með ólækn­andi eitilfrumu­krabba­mein og hefur þurft að takast á við það sam­hliða erf­iðri bar­áttu eftir slysið.

„Þetta eru ekki 180 dagar í fríi. Þetta eru 180 dagar af veik­indum, verkjum, aðgerðum, sýk­ingum, ótta og bar­áttu fyrir lífi mínu,“ skrifar Ingólfur.

Hann spyr hvort það sé virki­lega þannig á Íslandi árið 2026 að fólk sem veik­ist alvar­lega og þurfi langa sjúkra­hús­dvöl eigi á hættu að missa fjár­hags­legt öryggi vegna þess að það hafi verið veikt of lengi.

„Ég valdi ekki bílslysið. Ég valdi ekki krabba­meinið. Ég valdi ekki aðgerð­irnar. Ég valdi ekki fötl­un­ina. Ég hef aðeins verið að reyna að lifa af og ná eins góðum bata og mögu­legt er,“ segir hann.

Ingólfur segir nú, þegar hann sé loks­ins far­inn að sjá fram á betri tíma og vilji byggja upp lífið á ný með eig­in­konu sinni, blasi við honum fjár­hags­legt áfall.

„Ég er ekki að biðja um vor­kunn. Ég er að biðja um sann­girni, mannúð og rétt­læti.“

Kallar eftir endurskoðun

Ingólfur skorar á Trygg­inga­stofnun og stjórn­völd að end­ur­skoða fyr­ir­komu­lagið og skoða hvort hægt sé að gera ein­stak­lings­bundnar und­an­tekn­ingar þegar um jafn alvar­leg veik­indi og afleið­ingar þeirra sé að ræða.

„Fólk á ekki að þurfa að velja á milli þess að fá nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu og þess að hafa í sig og á,“ skrifar hann.

Hann segir að málið eigi ekki aðeins við um sig heldur alla sem gætu lent í sam­bæri­legri stöðu og hvetur fólk til að deila færsl­unni til að vekja athygli á mál­inu.

„Vel­ferð­ar­kerfi á að grípa fólk þegar það fellur, ekki láta það falla enn neðar,“ segir Ingólfur að lokum.

Í sam­tali við Mannlíf við gerð þess­arar fréttar vildi Ingólfur Marteinn endi­lega koma fram þökkum til heil­brigð­is­starfs­fólks sem ann­ast hefur hann.

„Þú mátt gjarnan taka fram að ég hef mínar bestu þakkir fyrir ynd­is­lega ummönnun starfs­fólk­inu á HSS Keflavík og Borg­ar­spít­al­anum Fossvogi og starfs­fólki gjör­gæslu­deild­anna beggja.“

Hér fyrir neðan má lesa opna bréf Ingólfs í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Segja Rússa hafa skipu­lagt árás undir fölsku flaggi í Póllandi

Samkvæmt heimildum Rzeczpospolita átti að kenna Úkraínu um skemmdarverk sem kynnu að hafa kostað marga lífið.
Heimur

Meintur flug­dólgur sleppur með hluta skrekks­ins

Heimur

Ísraelar hefja hern­að­ar­að­gerð í mið­hluta Gaza

Heimur

Greene telur trufl­an­irnar eftir kosn­ing­arnar ekki til­viljun

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Fyrirsætan vill að þingið ræði bann við atvinnuhnefaleikum og að stjórnmálaflokkar taki afstöðu til þess.
Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri