Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, vill að Alþingi taki bann við atvinnuhnefaleikum til umræðu. Í grein sem birtist í dag á Vísi rifjar hún upp að fyrir 25 árum hafi íslenskir hnefaleikamenn þurft að fara utan til að keppa, jafnvel þótt um áhugamenn væri að ræða.
„Ég myndi vilja sjá stjórnmálaflokkana taka skýra afstöðu til atvinnuhnefaleika í stefnuskrám sínum. Eftir að frumvörp hafa ítrekað verið lögð fram er kominn tími til að Alþingi ræði málið af alvöru!“ skrifar Ásdís.
Hún vísar þar til frumvarps þingmanna Sjálfstæðisflokksins um bardagaíþróttir sem gerir ráð fyrir leyfiskerfi og öryggiskröfum. Frumvarpið komst ekki til umræðu á síðasta þingi en var lagt fram á ný í september. Í skriflegu svari á Alþingi í október sagðist Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ekki ætla að beita sér fyrir því að atvinnuhnefaleikar yrðu leyfðir. Ráðherra vísaði til hættu á höfuð- og heilaskaða.
Ásdís segir að skoða eigi hvernig hin Norðurlöndin fjögur fara að, en þar eru atvinnuhnefaleikar leyfðir. Í Noregi þarf til dæmis læknir að vera viðstaddur keppni.
„Mér finnst þess vegna rétt að skoða hvernig nágrannaþjóðirnar haga lækniseftirliti og hvaða öryggiskröfur þær gera til mótshaldara.“
Þingmaður sá bardagana í sjónvarpinu
Ásdís kynntist baráttunni fyrir því að heimila áhugamannahnefaleika hér á landi árið 2001. „Árið 2001 var ég að æfa kickbox og stíga mín fyrstu skref í sjónvarpi,“ skrifar hún. Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar fékk hana til að fylgja hópi íslenskra hnefaleikamanna til Duluth í Minnesota þar sem þeir mættu bandarískum keppendum.
Um haustið sagðist þingmaður hafa séð íslensku keppendurna í sjónvarpinu. Hann hrósaði þeim í ræðu á Alþingi. Í febrúar árið eftir tóku gildi lög sem leyfðu áhugamannahnefaleika hér á landi. Nú mun Ásdís kynna endurfundi keppendanna.
„Laugardaginn 12. desember mætast Ísland og Bandaríkin á ný í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Þá kemur lið frá Duluth til landsins og margir af okkar bestu hnefaleikamönnum stíga í hringinn,“ skrifar Ásdís um framtíðina og vill sjá aðgerðir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir