Vísindamenn í Kína hafa þróað rafmagnskamb sem gæti hjálpað fólki að endurheimta hárvöxt og jafnvel snúið við skalla. Tæknin hefur þó enn aðeins verið prófuð á músum og ekki er vitað hvort hún muni virka á mönnum.
Kamburinn, sem kallast Detangle, var þróaður af vísindamönnum við Beihang-háskóla í Peking. Rannsóknin var birt í vísindaritinu Nature Communications í þessum mánuði.

Kamburinn er með rafskautum sem eru innbyggð í tennurnar og mynda rafsvið við hársekkina. Kerfið er einnig hannað til að flytja lyf inn í húðina og hársekkina með hjálp raförvunar.
Samkvæmt rannsókninni náði tæknin mun betri árangri en hefðbundin meðferð með minoxidil, virka efninu í meðal annars Rogaine, sem notað er gegn hárlosi.
Vísindamennirnir segja að hárvöxtur hafi aukist úr um 70 prósentum í nærri 100 prósent innan mánaðar hjá músum sem fengu meðferð með kambinum.
Skalli er algengur en meðferðir takmarkaðar
Skalli, eða androgenetic alopecia, getur komið fram hjá allt að 80 prósentum karla einhvern tíma á ævinni.
Þrátt fyrir algengi vandans eru meðferðarúrræði enn takmörkuð. Minoxidil getur hægt á hárlosi og örvað hárvöxt hjá sumum, en árangurinn er misjafn og getur tekið allt að ár að koma í ljós. Meðferðinni þarf einnig að halda áfram til að viðhalda árangrinum.
Annað lyf, finasteride, hefur einnig reynst árangursríkt á fyrstu stigum skalla. Það getur þó haft aukaverkanir, meðal annars ristruflanir og þunglyndi.
Hárígræðsla hefur notið vaxandi vinsælda á síðari árum. Við ígræðsluna eru hársekkir teknir af svæðum hársvarðarins sem eru ónæm fyrir hárlosi, svo sem hnakka og hliðum höfuðsins, og græddir á svæði þar sem skalli er að myndast. Meðferðin getur skilað árangri en er jafnframt inngripsmikil, sársaukafull og kostnaðarsöm.
Enn langt í að tæknin verði notuð á mönnum
Niðurstöður rannsóknarinnar lofa góðu, en enn hefur ekki verið sýnt fram á að rafmagnskamburinn virki á mönnum.
Prófanir á músum geta gefið vísbendingar um árangur meðferðarinnar. Áður en klínískar rannsóknir á fólki geta hafist þarf þó að rannsaka öryggi og virkni tækninnar betur.
Því segja vísindamennirnir of snemmt að fullyrða hvort Detangle geti orðið raunhæf meðferð við skalla hjá mönnum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir