Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst skipa starfshóp til að skoða breytingar á fæðingarorlofskerfinu. Meðal þess sem hópurinn mun kanna er staða foreldra sem eignast börn fyrir tímann eða með stuttu millibili. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Rögnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í gær.
Ragna spurði hvernig feður hefðu nýtt fæðingarorlof sitt frá því að þeir fengu sjálfstæðan rétt til þess og hvað mætti gera til að auðvelda þeim að nýta réttinn að fullu. Hún rifjaði upp að áður hefðu feður þurft samþykki móður til að taka hluta af orlofi hennar. „Þegar ég fæddist var enginn lögfestur sjálfstæður réttur feðra til fæðingarorlofs,“ sagði Ragna.
Ragnar Þór vísaði í svari sínu til talna Vinnumálastofnunar. Feður tóku að meðaltali 91 dag í orlof árið 2019, 115 daga árið 2020 og 131 dag árið 2021. „Frá árinu 2021 hefur meðalnýting feðra haldist nokkuð stöðug, eða 130 dagar,“ sagði hann. Ráðherra sagði jafnframt að sú fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að tryggja tekjulægri foreldrum óskert laun í fæðingarorlofi gæti orðið til þess að fleiri feður nýttu rétt sinn.
Deildu um skiptingu orlofsins
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, vildi gefa foreldrum meira svigrúm til að skipta orlofinu á milli sín. Hann taldi að fæstir gætu nýtt alla tólf mánuðina eins og kerfið væri úr garði gert. „Þetta reikningsdæmi og þessi skipting sem stjórnvöld hafa ákveðið fyrir foreldra gengur illa upp fyrir mjög marga foreldra,“ sagði Snorri.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, taldi fyrirkomulagið bitna sérstaklega á mæðrum. „Til að mynda eru mæður skyldaðar til að taka tvær vikur í orlof eftir fæðingu þannig að þær eru komnar með í raun og veru minni rétt en feðurnir,“ sagði hún og hvatti ráðherra til að skoða regluna við endurskoðun kerfisins.
Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tengdi umræðuna við lækkandi fæðingartíðni og lagði áherslu á fyrstu þúsund dagana í lífi barns. „Þarna er lagður grunnur að málþroska, félagsfærni, tilfinningastjórnun og tengslum almennt,“ sagði hann.
Í síðari ræðu sinni mótmælti Ragna fullyrðingu Snorra um að fæstir gætu fullnýtt orlofið. „Nýting daga, meðalfjöldi daga sem nýttir eru, er í takt við þennan óframseljanlega rétt til að mynda hjá feðrum en vissulega líka hjá mæðrum,“ sagði hún. Ragna tók hins vegar undir athugasemd Nönnu Margrétar um fyrstu tvær vikurnar. Hún nefndi sem dæmi móður sem starfaði við kennslu og eignaðist barn í miðju sumarfríi. Við núverandi fyrirkomulag þyrfti hún að hefja töku fæðingarorlofs strax þótt hún vildi ljúka sumarfríinu fyrst.
Í lok umræðunnar sagði Ragnar Þór að starfshópurinn myndi meðal annars skoða stöðu foreldra sem dreifðu orlofinu og eignuðust svo annað barn með stuttu millibili. „En það er auðvitað þannig að það eru hópar sem lenda á milli skips og bryggju og þess vegna þurfum við sífellt að endurskoða kerfin okkar,“ sagði ráðherra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir