Tinna Jökulsdóttir, sjúkraþjálfari og íþróttasálfræðiráðgjafi, vill að börn fái æfingu í að beina athyglinni að því sem þau velja sjálf og þoli að láta sér leiðast. Í grein sem hún birti í dag á Vísi fjallar hún um skjávenjur barna og fullorðinna og lýsir því hvernig hún grípur sjálf ósjálfrátt eftir símanum um leið og hlé verður á samtali.
Tinna segir frá því þegar hún hitti vinkonu sína á kaffihúsi. Um leið og þær settust tóku báðar símana úr töskunum og lögðu þá við hliðina á kaffibollunum. Báðar voru þó með snjallúr sem létu þær vita ef einhver þurfti að ná í þær.
Hún segist finna fyrir pirringi þegar vinir líta ítrekað í símann á þeim tíma sem þeir hafa tekið frá til að hittast. „Sá sem lætur undan stimplar sig út úr samræðunum og mér finnst það í raun ákveðin vanvirðing við samverustundina.“
Sjálf þekkir hún freistinguna vel, hvort sem hún situr á biðstofu eða vinkona bregður sér frá borðinu. „Ég þarf nánast að beita sjálfa mig hörku til að standast freistinguna,“ skrifar hún og spyr: „Hvenær urðu þessar litlu eyður í deginum okkar að einhverju sem þarf að fylla upp í?“
Börnin taka eftir nýjum hlutum
Tinna, sem er fimm barna móðir og höfundur barnaleikritsins Púkinn í herberginu, notar einfaldar athyglisæfingar í starfi sínu með börnum og ungmennum. Í einni þeirra sitja börnin kyrr, líta hægt til beggja hliða og taka eftir hlutum í kringum sig. Síðan líta þau aftur í kringum sig og athuga hvað annað fangar athygli þeirra.
„Aðalatriðið er að nefna og finna hvar athyglin var á meðan á æfingunni stóð,“ skrifar Tinna. Hún segir börnin oft verða hissa þegar þau átta sig á því hversu vel þau náðu að einbeita sér að því sem var fyrir augum þeirra.
Tinna telur að slíkar æfingar geti nýst í forvarnastarfi og hvetur foreldra til að ræða við börnin um hvað þau vilja verja tíma sínum í. „Oft er nóg að hefja samtalið heima fyrir og að áherslan sé þessi meðvitund, frekar en eingöngu boð og bönn.“
Hún beinir sömu spurningu til fullorðinna og barna. „Hverju erum við að missa af á meðan skjárinn étur upp athygli okkar?“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir