Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Segir húsnæðismarkaðinn vera „eina stóra svikamyllu“

Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son gagn­rýnir kaup Íslands­banka á íbúðum og kallar eftir aðgerðum gegn hækk­andi leigu­verði og ásókn fjár­festa í hús­næði.

Íslandsbanki
Íslands­banki Jón Ferd­ín­and gagn­rýnir kaup Íslands­banka á íbúðum. Mynd: Íslandsbanki

Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son, for­maður Sós­í­alista­flokks­ins, gagn­rýnir íslenskan hús­næð­is­markað harð­lega í Facebook-færslu í kjöl­far frétta af kaupum Íslands­banka á fjölda íbúða. Hann segir mark­að­inn vera „eina stóra svika­mylla“ og telur að ásókn fjár­festa í hús­næði hafi keyrt verð­lag upp í óraun­hæfar hæðir.

Jón Ferd­ín­and seg­ist eiga erfitt með að veita umræðu á Alþingi mikla athygli, en það sem haldi fyrir honum vöku sé raun­veru­leik­inn á hús­næð­is­mark­aði.

„Ég á soldið bágt með að veita leik­rit­inu á Alþingi mikla athygli, lið­hlaupar og egóismi úr einu þing­liði yfir í annað, þras og röfl um ekki neitt.“

Hann vísar sér­stak­lega til frétta um að Íslands­banki hafi keypt 20 íbúðir af sjálfum sér og sitji þannig beggja vegna borðs­ins.

„Fjár­magnar upp­bygg­ing­una og kaupir svo eign­irnar, því þær selj­ast ekki. Búist er við því að bank­arnir muni eign­ast jafn­vel hund­ruðir íbúða í við­bót á næst­unni þar sem bygg­inga­fé­lögin og verk­taka­fyr­ir­tækin eru skuld­sett upp í rjáfur, búin að verð­leggja sig út í hið fárán­lega. Gott að vera banki á Íslandi,“ skrifar Jón Ferd­ín­and.

Hann segir að fjár­festar hafi keyrt hús­næð­is­verð upp með ásókn sinni í íbúðir og gagn­rýnir græðgi leigu­sala og fjár­festa. Hann telur að hækk­andi leigu­verð, verð­bólga og stig­magn­andi hækkun hús­næð­is­verðs hafi skapað víta­hring.

„Svika­mylla fjár­fest­anna að hrynja niður um eigið sjálf,“ skrifar hann.

Gagnrýnir uppbyggingu hótelturns

Jón Ferd­ín­and víkur einnig að hót­elturni við Skúla­götu sem hann segir hafa verið byggðan án þess að nægi­legt fjár­magn hafi verið tryggt til að ljúka fram­kvæmd­inni.

„Einhver hefði getað varað þá fjár­festa við, að það væri nú varla til­efni til enn ann­ars risa­hót­els í Reykja­vík?“ spyr hann og gagn­rýnir að hópi fjár­festa­fé­laga hafi verið seld lóð og veitt leyfi fyrir fram­kvæmd­inni án þess að fjár­mögnun lægi fyrir.

Hann segir að í eðli­legum heimi hefði turn­inn verið klár­aður og tek­inn í notkun sem íbúð­ar­hús, óhagn­að­ar­drifið.

Segir ástandið á byggingamarkaði vera „nútímaþrælahald“

Formaður Sós­í­alista­flokks­ins vísar einnig til greinar á vef­síðu Bygg­iðnar þar sem Ólafur, húsa­smíða­meist­ari og eft­ir­lits­full­trúi hjá Byggiðn, lýsir aðstæðum á bygg­inga­mark­aði.

Jón Ferd­ín­and segir þar hafa komið fram lýs­ingar á félags­legu und­ir­boði, þar sem ófaglært, ómenntað og reynslu­laust erlent vinnu­afl sé flutt inn í gegnum starfs­manna­leigur og fyr­ir­tæki til að vinna á lágum launum.

Hann segir að slíkt fyr­ir­komu­lag geri fyr­ir­tækjum kleift að und­ir­bjóða lærða húsa­smíða­meist­ara og fag­leg bygg­inga­fé­lög.

Jón Ferd­ín­and segir Ólaf hafa lýst þver­brotum á rétt­indum starfs­fólks, launa­þjófn­aði og skorti á fag­legum stöðlum. Hann segir stöð­una á bygg­inga­mark­aði aldrei hafa verið verri og vísar til þess sem „nútíma­þræla­halds“.

„Ekki furða að megnið af þessum nýbygg­ingum molni jafn hratt í sundur og þær for­ljótu gorkúlur rísa upp,“ skrifar hann.

Kallar eftir aðgerðum

Jón Ferd­ín­and segir bygg­inga­fé­lög og verk­taka­fyr­ir­tæki nú mörg hver standa á barmi gjald­þrots þrátt fyrir að hafa und­ir­boðið laun og kjör, svikið starfs­fólk og nýtt sér starfs­manna­leigur.

Hann segir fyr­ir­tækin jafn­framt hafa notið ofsa­gróða á síð­asta ára­tug á bras­kvæddum bygg­inga- og hús­næð­is­mark­aði.

„Hér þarf að grípa til aðgerða. Það er aug­ljóst að mark­aðs­drifin upp­bygg­ing á hús­næði virkar ekki. Rányrkja bank­anna og fjár­festa leyfa það ekki,“ skrifar Jón Ferd­ín­and.

Hann kallar eftir því að stjórn­leysi í hækk­unum leigu­verðs verði stöðvað, að komið verði í veg fyrir að fjár­festar kaupi upp íbúðir og sitji á þeim, jafn­vel tómum, og að end­ur­skoðað verði hvernig atvinnu­rek­endur geti farið með aðflutt vinnu­afl.

Jón Ferd­ín­and varar að lokum við því að án aðgerða geti íslenskt sam­fé­lag staðið frammi fyrir langvar­andi efna­hag­skrísu, kreppu og jafn­vel hruni.

„Viljum við það aftur?“ spyr hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Myndavél sem sett var upp til að fylgjast með minkum á Saaremaa náði einnig myndum af „einhyrningnum“
Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Heimur

Lítið fyr­ir­bæri í geimnum vekur stórar spurn­ingar

Pólitík

„Það er kapps­mál að gera það að aðlað­andi kosti að flytja á lands­byggð­ina“

Pólitík

Grímur telur vel rök­stutt að fella brott­vís­un­ina úr gildi

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti