Sjálfvirk myndavél á eistnesku eyjunni Saaremaa tók upp myndskeið af rádýri með útvöxt á miðju enni. Á myndunum virðist dýrið við fyrstu sýn bera stakt horn. Sérfræðingar sem skoðuðu upptökuna gátu þó ekki skorið úr um hvort þar væri um að ræða horn eða aukaeyra.
Lutreola-stofnunin birti myndskeiðið nýlega á Facebook og líkti dýrinu í léttum dúr við einhyrning. „Einhyrningur fundinn á Saaremaa. Draumar lítilla stúlkna hafa loksins ræst!“ segir í færslunni.
Myndavélin var sett upp til að fylgjast með minkum á eyjunni. Að sögn stofnunarinnar hefur hún einnig náð myndum af sjaldgæfum fugli, svörtum storki
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir