Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

„Það er að virka betur en lagt var upp með“

Ragnar Þór Ingólfsson
Ragnar Þór Ing­ólfs­son Er félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Mynd: Víkingur

Ragnar Þór Ing­ólfs­son félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra segir enga stefnu­breyt­ingu hafa orðið í ráðu­neyt­inu varð­andi aukið svig­rúm for­eldra til að skipta fæð­ing­ar­or­lofi sín á milli. Málið kom til umræðu á Alþingi í dag þegar Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði ráð­herra um fyr­ir­komu­lag fæð­ing­ar­or­lofs.

Snorri gagn­rýndi núver­andi kerfi, þar sem for­eldrar eiga almennt sex mán­aða rétt hvort og aðeins hluti tím­ans er fram­selj­an­legur. Hann sagði kerfið koma illa niður á fjöl­skyldum sem af ýmsum ástæðum gætu ekki nýtt orlofið sam­kvæmt þeirri skipt­ingu.

„Við höfum lengi talað fyrir því að afnema þessa skyldu­bundnu skipt­ingu af hálfu stjórn­valda. Þetta er gíf­ur­legt rétt­læt­is­mál,“ sagði Snorri.

Ragnar Þór sagði stjórn­völd áfram vilja skoða auk­inn sveigj­an­leika og að fleiri þættir fæð­ing­ar­or­lofs­kerf­is­ins væru einnig til skoð­unar.

„Það er engin stefnu­breyt­ing í ráðu­neyt­inu varð­andi það að auka mögu­leika á skipt­ingu fæð­ing­ar­or­lofs,“ sagði Ragnar Þór benti jafn­framt á að miklar breyt­ingar hefðu verið gerðar á fæð­ing­ar­or­lofs­kerf­inu á und­an­förnum árum, meðal ann­ars með leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs og sorg­ar­leyfis, greiðslum til for­eldra vegna veik­inda á með­göngu og hækkun hámarks­greiðslna. Sagði hann breyt­ing­arnar hafa orðið til þess að feður tækju fæð­ing­ar­or­lof í mun rík­ari mæli en áður og að því hefði fylgt auk­inn kostn­aður.

Snorri gagnrýnir kostnaðarrökin

Snorri gagn­rýndi að kostn­aður væri nefndur sem hindrun og sagði dap­ur­legt ef litið væri á aukna nýt­ingu fæð­ing­ar­or­lofs með þeim hætti.

„Það er heldur nöt­ur­leg sýn á fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið að líta svo á að það sé hvim­leiður kostn­aður sem fylgir því í raun og veru að gera þessar breyt­ingar þannig að fjöl­skyldur væru þá í auknum mæli að nýta alla 12 mán­uð­ina sem er réttur þeirra,“ sagði Snorri.

Ragnar Þór ítrek­aði að þær breyt­ingar sem þegar hefðu verið gerðar væru jákvæðar og hefðu meðal ann­ars orðið til þess að feður tækju fæð­ing­ar­or­lof í rík­ari mæli en áður. Frekari breyt­ingar köll­uðu hins vegar á fjár­heim­ildir.

„Það er að virka betur en lagt var upp með,“ sagði Ragnar Þór um breyt­ing­arnar og bætti við að auknum útgjöldum vegna frek­ari breyt­inga þyrftu að fylgja við­eig­andi heim­ildir Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Vís­inda­menn þróa raf­magns­kamb sem gæti end­ur­vakið hár­vöxt

Hárvöxtur hjá músum sem fengu meðferðina jókst úr um 70 prósentum í nærri 100 prósent á mánuði, samkvæmt rannsókninni.
Pólitík

Ragna og Nanna vilja skoða skyldu mæðra til að taka orlof strax eftir fæð­ingu

Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Pólitík

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Þingmaðurinn sagði að umsækjendur um þyrftu að hafa undir 430 þúsund krónum í mánaðartekjur fyrir skatt.
  • Pólitík

    „Það er kapps­mál að gera það að aðlað­andi kosti að flytja á lands­byggð­ina“

  • Pólitík

    Grímur telur vel rök­stutt að fella brott­vís­un­ina úr gildi

  • Pólitík

    Össur segir Viðreisn veikasta hlekk rík­is­stjórn­ar­innar

  • Pólitík

    Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

  • Pólitík

    Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi