Héraðsdómur Reykjaness hefur sakfellt rúmlega tvítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, eignaspjöll og tilraun til húsbrots. Maðurinn stakk starfsmann sem sinnti lögbundinni þjónustu við hann í hálsinn með blýanti og reyndi síðar að ryðjast inn á heimili hans. Ákvörðun um refsingu var frestað og fellur hún niður að fimm árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð.
Árásin átti sér stað að kvöldi laugardagsins 27. júlí 2024. Maðurinn sló starfsmanninn með hnefanum í bakið og stakk hann síðan með blýanti vinstra megin í hálsinn. Starfsmaðurinn hlaut stungusár á hálsi, mar á mjóbaki og tognun í brjósthrygg. Rúmum sjö mánuðum síðar, hinn 3. mars 2025, braut maðurinn rúðu í útidyrahurð íbúðar starfsmannsins í þeim tilgangi að komast inn.
Maðurinn játaði brotin fyrir dómi. Hann hafði ekki áður gerst sekur um refsivert brot svo vitað væri. Geðlæknir sem mat manninn taldi óvíst hvort hann hefði verið sakhæfur þegar hann framdi brotin. Að mati geðlæknisins lék hins vegar enginn vafi á að refsing gæti ekki borið árangur.
Starfsmaðurinn krafðist tveggja milljóna króna í miskabætur. Dómurinn dæmdi manninn til að greiða honum 800.000 krónur í miskabætur og 15.256 krónur vegna eignatjóns, auk vaxta.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir