Leifar af skála, líklega frá landnámstíma, komu í ljós við framkvæmdir á Aðalbóli í Hrafnkelsdal í haust. Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu fólks í dalnum á fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Frá þessu segir á Austurfrétt.
Minjarnar fundust í byrjun september þegar verið var að endurhlaða vegg við kúahlöðu nærri bílastæði á Aðalbóli. Þegar gömul hleðsla var fjarlægð kom í ljós snið með leifum eldri byggingar.
Indriði Skarphéðinsson fornleifafræðingur úr Fellabæ, var fenginn til að skoða svæðið. Við hreinsun sniðsins komu í ljós umfangsmiklar mannvistarleifar, sem hann telur líklega vera af skála frá 10. öld.

Skálinn virðist að hluta til nokkuð heillegur og gæti hentað vel til frekari rannsókna þar sem minjarnar virðast ekki hafa verið raskaðar með síðari byggingum. Við athugun fundust meðal annars sáför, niðurgrafnar tunnur sem notaðar voru til geymslu matvæla, auk kola og skeljar.
„Á svona stöðum er almennt byggt aftur og aftur á gömlum tóftum og þá verður allt sundurskorið. Það sem er í hólnum virðist nokkuð ósnert og þess vegna gæti þetta svæði hentað vel til frekari rannsókna,“ segir Indriði í samtali við Austurfrétt.
Gjóskulög á svæðinu gera mögulegt að tímasetja minjarnar með nokkurri nákvæmni. Skálinn virðist liggja ofan á landnámssyrpu, þar sem yngsta lagið er frá um 950, en yfir honum er óhreyft öskulag frá Heklu árið 1158.
Aðalból er þekktur fornleifastaður og hefur áður fundist kuml í nágrenni bæjarins. Indriði segir ekki hægt að tengja minjarnar við ákveðna einstaklinga, en mögulegt sé að um fyrsta bústað fólks í Hrafnkelsdal sé að ræða.
Hrafnkelsdalur er kenndur við Hrafnkel Freysgoða, sem samkvæmt Hrafnkels sögu Freysgoða byggði sér bú á Aðalbóli. Indriði segir frekari rannsóknir geta varpað ljósi á daglegt líf fólks innst í dalnum á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Þekkt er að blómleg byggð var í dalnum eftir árið 1000, en hún lagðist af um 1447. Dalurinn var ekki aftur byggður að ráði fyrr en á seinni hluta 19. aldar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir