Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Gist­ingin fór fram utandyra, en það var nátt­úra lands­ins sem stóð upp úr í upp­lifun ferða­lang­anna.

Askja
Askja Ferða­lang­arnir gengu um Öskju­svæðið og virtu fyrir sér Öskju­vatn

Írski ferða­lang­ur­inn Michael Guil­foyle segir ferð um hálendi Íslands hafa verið ein­staka upp­lifun, langt frá heitum laugum, ferða­manna­fjölda og öðrum þeim þáttum sem erlendir gestir tengja gjarnan við Ísland. Guil­foyle fjallar um ferð­ina í grein sem birt­ist í The Irish Times á mánu­dag.

Guil­foyle ferð­að­ist ásamt hópi vina um mið­há­lendið síðla sum­ars en ferða­lang­arnir voru á aldr­inum rúm­lega sex­tugs og upp í átt­rætt. Hópurinn leigði sér öfl­ugan jeppa fyrir 4.300 evrur og hélt meðal ann­ars að Herðu­breið, Öskju og Kverk­fjöllum.

„Það voru for­rétt­indi fyrir okkur að kom­ast inn á hálendið einn dag síðla sum­ars,“ skrifar Guil­foyle.

Ferðin var þó ekki hættu­laus. Á F88 þurfti hóp­ur­inn að aka yfir Jökulsá á Fjöllum og við­ur­kennir Guil­foyle að ferða­lang­arnir hafi verið óvanir slíkum aðstæðum. Þeir hafi horft á ána í tíu mín­útur með vél­ina í gangi áður en ákveðið var að láta vaða.

„Við vorum ekki vanir því að fara yfir ár af óþekktu dýpi og því störðum við á hana í heilar tíu mín­útur,“ skrifar hann. Jeppinn hafi þó kom­ist yfir án telj­andi vand­ræða.

Ferða­lang­arnir gistu meðal ann­ars við Herðu­breið og Öskju og segir Guil­foyle göngu­ferðir um Öskju­svæðið hafa verið hápunkt ferð­ar­innar. Þar hafi hóp­ur­inn gengið um snjó, hraun og vikur og virt fyrir sér Öskju­vatn.

Veður og snjóa­lög komu í veg fyrir fyr­ir­hug­aða leið suður um hálendið og því hélt hóp­ur­inn austur á þjóð­veg eitt.

Suð­ur­ströndin olli hins vegar nokkrum von­brigðum vegna rign­ingar og ferða­manna­fjölda. Óvænt dags­ferð til Heima­eyjar reynd­ist aftur á móti afar vel heppnuð.

Eftir ell­efu nætur í tjaldi sagð­ist Guil­foyle ekki hafa viljað skipta tjald­stæð­inu út fyrir hótel við Kefla­vík­ur­flug­völl, sér­stak­lega þegar hót­el­nóttin kost­aði yfir 300 evrur en tjald­stæðið aðeins um 20 evrur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Landið

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Tuttugu ár eru liðin frá því að vatni úr fossaröðinni í Fljótsdal var veitt inn í Hálslón
Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri