Það fer að hvessa á Suðausturlandi undir hádegi. Þar má búast við rigningu eða slyddu á láglendi og snjókomu til fjalla. Síðdegis verður orðið hvasst sunnan og austan til og í kvöld er spáð austan og suðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu. Vindur verður yfirleitt hægari vestanlands.
Seint í kvöld er spáð sunnan og suðaustan 18 til 25 metrum á sekúndu með snjókomu eða skafrenningi á Norðurlandi. Hvassast verður á Tröllaskaga. Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum. Hiti verður á bilinu núll til sex stig.
Á sunnudag verður hægari vindur víðast hvar, þótt áfram verði nokkuð hvasst á Norðvesturlandi fram undir hádegi. Víða verða skúrir eða él en úrkomulítið norðanlands. Hiti verður nálægt frostmarki.
Á mánudag kólnar og gæti frostið farið í átta stig inn til landsins. Veðurstofan gerir ráð fyrir slyddu eða snjókomu víða á þriðjudag en á fimmtudag gæti hlýnað með sunnanátt og rigningu.
Nokkrar eldingar mældust í éljaganginum í gær og í nótt. Veðurfræðingur Veðurstofu Íslands bendir á að eldingar séu ekki óalgengar í svona óstöðugu lofti.
Lægðin nálgast landið úr suðri og er búist við að miðja hennar verði við suðurströndina síðdegis. Þegar líður á kvöldið færist hún yfir vestanvert landið og vindur snýst til suðurs austanlands. Þá má búast við sunnanhríð á Norðurlandi. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassviðris og hríðar.
Lægðin heldur svo til norðvesturs í nótt. Þá dregur úr vindi og skúrir eða slydduél fylgja í kjölfarið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir