Lýstar kröfur í þrotabú átta einkahlutafélaga námu samtals 62.546.457 krónum. Þetta kemur fram í auglýsingum um skiptalok sem birtust í Lögbirtingablaðinu í dag. Skiptum á búunum lauk dagana 19. til 25. nóvember. Engar eignir fundust í fjórum búanna og fengu kröfuhafar þar ekkert greitt upp í kröfur sem námu rúmum 34,2 milljónum króna.
Hæstar voru kröfurnar í þrotabú Tóner og bleks ehf., tæpar 19,8 milljónir króna auk vaxta og kostnaðar. Bú félagsins var tekið til gjaldþrotaskipta 3. maí 2023 að kröfu Skattsins. Sama dag var bú S. Ísleifsson ehf. tekið til skipta, einnig að kröfu Skattsins. Kröfur í það bú námu rúmum 5,4 milljónum króna auk vaxta og kostnaðar.
Við eignaleit í búi S. Ísleifsson ehf. kom fram að bifhjól var skráð á félagið. Fyrirsvarsmaður félagsins sagði við skýrslutöku að hjólið hefði verið afskráð og kvaðst telja að það væri ekki lengur til. Skiptastjóri taldi enga leið að hafa uppi á hjólinu. Skiptum beggja búa lauk 19. nóvember án þess að kröfuhafar fengju greitt.
Héraðsdómur Reykjaness tók bú hinna sex félaganna til gjaldþrotaskipta 10. september síðastliðinn. Skiptum á búum Mára ehf. og Kauphóls/Faxafells ehf. lauk 24. nóvember. Kröfur í bú Mára námu rúmum 6,8 milljónum króna og tæpum 2,3 milljónum í bú Kauphóls/Faxafells. Hvorugt búið átti eignir til að greiða kröfuhöfum.
Daginn eftir lauk skiptum á fjórum búum. Lýstar kröfur námu rúmum 11,7 milljónum króna hjá Versluninni Vogum ehf. í Vogum, rúmum 9,9 milljónum hjá Húmi ehf. í Grindavík, rúmum 4,4 milljónum hjá Pit stop garage ehf. í Hafnarfirði og tæpum 2,2 milljónum hjá Iceland in sight ehf. í Kópavogi. Í Lögbirtingablaðinu kemur ekki fram hvort kröfuhafar fengu greitt úr þessum fjórum búum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir