Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þrír skipverjar fjórust

Fjórtán skip­verjum var bjargað um borð í þyrlu Landhelgis­gæslunnar.

Þrír fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af landinu í gær, 25. nóvember. Fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgis­gæslunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgis­gæslunnar.

Stjórnstöð Landhelgis­gæslunnar barst neyðarboð frá skip­stjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17 um að leki væri kominn að skipinu. Varð­stjórar báðu áhöfnina að klæðast björgunar­göllum. Skömmu síðar lýsti skip­stjórinn yfir neyðar­ástandi og tilkynnti að skip­verjar væru að yfirgefa skipið.

Þyrlu­sveit Landhelgis­gæslunnar var kölluð út, ásamt áhöfn eftirlits­flug­vélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarna­félagsins Lands­bjargar á Aust­fjörðum og Norður­landi eystra. Öll skip úti fyrir Austur­landi voru jafnframt beðin um að halda á vettvang. Samhæfingarstöð almanna­varna var virkjuð, sem og aðgerðar­stjórnir á Norður­landi eystra, Austur­landi og höfuð­borgar­svæðinu.

Eftirlits­flugvélin kom á vettvang laust eftir klukkan 20. Þyrla Landhelgis­gæslunnar og fiskiskip sem beðin höfðu verið að koma til aðstoðar komu þangað klukkan 21.15. Björgunar­aðgerðir þyrlu­sveitarinnar á vettvangi stóðu í um tvær klukku­stundir við aðstæður sem Landhelgis­gæslan lýsir sem mjög krefjandi.

Þyrlan lenti á Egilsstaða­flugvelli laust fyrir miðnætti. Þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsu­gæslunni á Egils­stöðum. Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykja­víkur um nóttina með eftirlits­flugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Pólitík

Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Pólitík

„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“