Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Skipverjum bjargað úr sjónum

Sautján voru um borð þegar skipið sökk austur af landinu. Einhverjum skip­verjanna hefur verið bjargað nú þegar.

Jökull við bryggju
Jökull við bryggju Jökull ÞH 299 í höfn á Húsavík árið 2021. Skipið sökk austur af land­inu með sautján skip­verja um borð. Mynd: Hafþór Hreiðarsson / Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar

Einhverjum af sautján skip­verjum Jökuls hefur verið náð úr sjónum eftir að skipið sökk austur af landinu. Ekki liggur fyrir hversu mörgum hefur verið bjargað né hvert ástand þeirra er. Þetta kemur fram í frétt Heimildarinnar.

Aðgerðum virðist vera lokið á vettvangi, þar sem skipum hefur verið snúið við.

Skip­stjóri skipsins lýsti yfir neyðar­ástandi laust eftir klukkan 17. Skömmu síðar bárust Landhelgis­gæslunni upplýsingar um að áhöfnin væri að yfirgefa skipið, samkvæmt tilkynningu gæslunnar sem Heimildin birtir efni úr.

Samkvæmt frétt Heimildarinnar náðu níu skip­verjar að festa sig saman í línu í sjónum. Þeir voru með talstöð og björgunar­aðilar hafa getað haft samband við þá.

Eftirlits­flugvél Landhelgis­gæslunnar kom á vettvang um klukkan átta og þyrla hennar laust eftir klukkan níu. Fiskiskip voru einnig beðin um að halda á vettvang og þrjú björgunar­skip voru send af stað.

Georg Lárusson sagði í auka­fréttatíma RÚV að gerðar hefðu verið tvær tilraunir til að varpa gúmmí­bátum úr flugvél gæslunnar til skip­verjanna. Ekki hefði tekist að koma bátunum nógu nálægt þeim til að þeir nýttust.

Aðstæður á svæðinu eru sagðar erfiðar og ölduhæð hátt í fimm metrar. Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar biðu sjúkra­flugvélar á Egils­stöðum eftir því að flytja skipverja þangað og síðan áfram til Reykja­víkur.

Beðið er frekari frétta frá Landhelgis­gæslunni sem áttu að berast klukkan 23.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

Þingmaðurinn hvatti á Alþingi til vandaðra rannsókna á brotum gegn lögreglumönnum vegna starfa þeirra.
Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Pólitík

„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana