Ferð spænsku leikkonunnar Amarna Miller til Sýrlands hefur vakið deilur eftir að hún birti myndskeið frá heimsókn sinni í Umayyad-moskuna í Damaskus og sást í fylgd sýrlenskra ráðamanna í borginni Palmyra. Sýrlensk yfirvöld segja að fundurinn hafi verið tilviljun og hafna því að Miller hafi verið í opinberri heimsókn.
Þarlendir fjölmiðlar greindu frá því að í færslum á samfélagsmiðlum hafi verið fullyrt að menningarmálaráðuneyti Sýrlands hefði varið 23.400 Bandaríkjadölum í flug, gistingu og akstur fyrir Miller. Sýrlenski staðreyndavaktarmiðillinn Verify-Sy kannaði málið og kvaðst engin gögn hafa fundið sem styddu fullyrðinguna.
Fulltrúi menningarmálaráðuneytisins sagði í samtali við Verify-Sy að Mohammed Yassin Saleh menningarmálaráðherra og aðrir í sendinefndinni hefðu rekist á hóp ferðamanna í Palmyra og heilsað honum án þess að vita hverjir væru þar á ferð. Samkvæmt ferðamálaráðuneytinu var sendinefndin á staðnum til að kynna sér áform um uppbyggingu á fornminjasvæðinu og við flugvöllinn.
Sýrlenski blaðamaðurinn Ammar al-Mamoun segist hafa rætt við Miller á Instagram. Að hans sögn sagðist hún hafa greitt sjálf fyrir ferðina og farið án opinbers boðs. Hann sagði hana hafa hafnað því að skjáskot af samtalinu yrði birt af ótta um öryggi sitt. Færslan þar sem hún sýndi frá ferðinni var síðar horfin af reikningi hennar.
Í myndskeiðum úr ferðinni fjallaði hún um sögu Sýrlands og þau ummerki sem stríðsárin hafa skilið eftir. Sumir gagnrýndu heimsókn hennar í moskuna með vísan til fyrri starfa hennar. Miller hætti í klámiðnaðinum árið 2017 og hefur síðan meðal annars fengist við skrif og rekið ferðaskrifstofu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir