Nærri 1,85 milljónir ólífutrjáa hafa verið rifnar upp eða eyðilagðar á Gaza-svæðinu frá því þjóðamorðið hófst í október 2023, eftir hryðjuverkaárás Hamas í Ísrael. Framleiðsla á ólífum hefur hrunið og svæðið stendur nú frammi fyrir miklum skorti á matvælum. Ólífurækt, sem hefur verið ein mikilvægasta atvinnugrein Palestínumanna á Gaza um aldir, er í mikilli hættu.
Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun The Independent, sem byggir meðal annars á gögnum frá landbúnaðarráðuneyti Gaza og viðtölum við bændur og sérfræðinga.
Samkvæmt gögnunum voru um tvær milljónir ólífutrjáa á Gaza fyrir þjóðarmorðið, en aðeins um 150 þúsund eru eftir. Ræktunarsvæði ólífutrjáa hefur minnkað um 90 prósent, úr um 50 þúsund dunum fyrir stríð í aðeins fimm þúsund dunum á þessu ári.
Ólífuuppskeran hefur sömuleiðis dregist saman úr um 40 þúsund tonnum á ári í aðeins fimm þúsund tonn. Framleiðsla ólífuolíu hefur fallið úr fimm þúsund tonnum í um 700 tonn.
Aldargömul tré horfin
Ólífutré hafa lengi verið kölluð „kórónudjásn“ landbúnaðarins á Gaza og áður stóðu ólífulundir undir nærri 60 prósentum af ræktuðu aldingarðssvæði svæðisins.
Einn þeirra sem hafa misst lífsviðurværi sitt er Zaher Kashko. Fjölskylda hans hafði átt fimm dúnam (eitt dúnam er um 1.000 fermetrar) landsvæði í nærri 200 ár. Þar stóðu 40 fullvaxin ólífutré sem gáfu af sér allt að 12 tonn af ólífum á góðum árum.
Í dag er landið handan svokallaðrar rauðrar línu, sem er undir stjórn ísraelska hersins. Ólífulundurinn og olíupressan hafa verið eyðilögð og Kashko hefur neyðst til að selja falafel á götum úti til að framfleyta fjölskyldu sinni. Hann segir að 150 fjölskyldumeðlimir hans hafi látið lífið í stríðinu.
Annar bóndi, Haidar Abu Madin, átti ásamt bræðrum sínum 924 dúnam ólífulund sem framleiddi allt að 1.500 tonn af ólífum á ári. Nú er hluti landsins óaðgengilegur vegna hernáms og hinn hlutinn hefur verið jafnaður við jörðu með jarðýtum. Aðeins um 30 tré standa eftir.
„Uppskeran dugði áður til að sjá öllu miðsvæðinu fyrir bæði olíu og ólífum,“ segir hann.
Ísraelsher segir að aðgerðirnar séu nauðsynlegar
Ísraelsk yfirvöld hafa lýst stórfelldri eyðingu gróðurs og landbúnaðarsvæða sem hernaðarlegri nauðsyn. Markmiðið sé meðal annars að afhjúpa jarðgöng og eldflaugaskotpalla sem Hamas-samtökin eru sökuð um að fela í landbúnaðarlandi.
Talsmaður ísraelska hersins hefur sagt að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að Hamas geti endurbyggt hernaðargetu sína og endurtekið árásirnar 7. október.
Ísraelskur hermaður lýsti aðgerðum með jarðýtum þannig að verið væri að búa til eins konar varnarsvæði þar sem gróður og akurlendi væru fjarlægð til að koma í veg fyrir hugsanlegar ógnir.
Landbúnaðarrannsakandinn Nizar al-Wahidi segir hins vegar að herinn líti á ólífutrén sem hindrun fyrir útsýni og skotlínur. Jarðýtur geti eyðilagt á nokkrum klukkustundum það sem taki mörg ár að endurheimta.
Ólífutré geta þurft fimm til níu ár frá gróðursetningu áður en þau bera fyrstu ávextina og ná ekki hámarksframleiðslu fyrr en eftir áratuga ræktun og umhirðu.
Aðeins 2,2 prósent landbúnaðarlands aðgengileg
Eyðileggingin hefur haldið áfram þrátt fyrir að vopnahlé hafi tekið gildi í október 2025. Samkvæmt upplýsingum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, var aðeins hægt að komast að þremur prósentum af heildarlandbúnaðarsvæði Gaza í júní 2026. Í ágúst hafði aðgengið minnkað enn frekar, niður í 2,2 prósent.
Á sama tíma hafa brunar eyðilagt stór landbúnaðarsvæði. Gervihnattamyndir frá júlí sýndu að um 16 ferkílómetrar ræktarlands höfðu brunnið, einkum í austurhluta Jabalia.
Bændur segja vatnsskort og skemmdir á áveitukerfum hafa gert stöðuna enn verri. Samkvæmt FAO hafa 86,7 prósent landbúnaðarbrunna á Gaza eyðilagst. Af þeim 2.261 brunni sem áður voru notaðir til að vökva akra og aldingarða eru aðeins 301 enn heilir, og bændur hafa aðgang að einungis 195 þeirra.
Verð á ólífum margfaldast
Afleiðingarnar sjást einnig á mörkuðum. Verð á kílói af ferskum ólífum hefur hækkað úr um 1,50 dali fyrir þjóðarmorðið í tíu dali á þessu ári, þrátt fyrir að ólífurnar séu minni en áður.
Ólífupressum hefur fækkað úr um 40 í aðeins sjö og þær starfa við takmarkaða afkastagetu. Fjöldi bænda sem starfa við ólífurækt hefur fallið úr um 20 þúsund í aðeins 100. Uppskerufólki hefur sömuleiðis fækkað úr um 3.000 í um 200.
Ahed Al-Rifi, sem stýrir ólífudeild landbúnaðarráðuneytisins, segir að bændur geti ekki sinnt trjánum með eðlilegum hætti vegna þess að þeir komist ekki að landi sínu og skorti áburð og varnarefni. Afleiðingin sé meðal annars útbreiðsla skaðvalda og plöntusjúkdóma sem ógni þeim trjám sem enn standa.
Í lok umfjöllunarinnar er haft eftir sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna að ólífuuppskeran eigi að vera tími þar sem bændur geti aflað sér lífsviðurværis við öruggar aðstæður, en ekki enn eitt tímabil ótta, missis og eyðileggingar.
Þeir segja að endurreisn matvælaframleiðslu á Gaza sé háð því að bændur fái öruggan og óheftan aðgang að landi sínu og nauðsynlegan búnað til ræktunar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir