Fjárfestingafélag Jared Kushners, tengdasonar Donalds Trump Bandaríkjaforseta, átti 32 milljóna dala hlut í bandarísku varnarmálafyrirtæki sem framleiðir íhluti fyrir orrustuþotur, kjarnorkukafbáta og eldflaugavarnarkerfi. Fjárfestingin vekur spurningar um mögulega hagsmunaárekstra þar sem Kushner kemur jafnframt að friðarviðræðum fyrir hönd Bandaríkjastjórnar.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn tímaritsins The Atlantic. Þar segir að fjárfestingafélag Kushners, Affinity Partners, hafi átt 689.411 hluti í varnarmálafyrirtækinu Arxis, en verðmæti hlutarins hafi verið um 32 milljónir dala.
Nærri helmingur árstekna Arxis, sem námu 1,6 milljörðum dala, kom frá varnarmála- og geimferðaiðnaði. Fyrirtækið hefur sjálft bent á að stríðsátök víða um heim og hætta á frekari átökum hafi aukið fjárfestingar í varnarmálum.
Athygli vekur að fjárfestingin kom ekki fram í upphaflegri ársfjórðungsskýrslu Affinity til bandaríska verðbréfaeftirlitsins í ágúst. Hún var ekki færð inn fyrr en 5. nóvember, tveimur dögum eftir þingkosningar í Bandaríkjunum. The Atlantic segir enga skýringu hafa fylgt breytingunni.
Fleiri fjárfestingar tengdar varnariðnaðinum
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjárfestingar Kushners vekja spurningar. CNN greindi frá því í október að Affinity væri stærsti hluthafinn í ísraelska fjármálafyrirtækinu Phoenix Financial, sem á hundruð milljóna dala í níu fyrirtækjum tengdum ísraelska varnariðnaðinum.
Samkvæmt CNN höfðu hlutabréf allra fyrirtækjanna hækkað í verði og nokkur þeirra tengdu aukna eftirspurn við þjóðarmorðið á Gaza.
Kushner hafnaði gagnrýninni og sagði umfjöllunina villandi. Hann benti á að Phoenix væri sambærilegt við bandarísku fjárfestingafélögin Vanguard og Fidelity og að hann hefði ekki stjórn á einstökum fjárfestingarákvörðunum þess.
Hann sagði fjárfestingarnar ekki draga athygli sína frá verkefninu sem Trump hefði falið honum, það er að stuðla að því að binda enda á stríð og vinna að friði.
The Atlantic greinir jafnframt frá því að Affinity hafi fjárfest í varnartæknifyrirtækinu Q-Ctrl í nóvember.
Kushner hefur komið að diplómatískum verkefnum tengdum átökum í Íran, Úkraínu og Mið-Austurlöndum. Umfjöllun The Atlantic hefur því vakið spurningar um hvort fjárhagslegir hagsmunir hans í varnariðnaðinum geti skarast við opinbert hlutverk hans.
Í greininni er kallað eftir ítarlegri rannsókn á málinu og því hvort einkafjárfestingar geti haft áhrif á ákvarðanir sem teknar eru í nafni þjóðaröryggis og friðar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir